Work

„Samt heyrðist söngurinn í Braga" Reynsla og viðhorf einstaklinga sem hafa búið við kröpp kjör í æsku á Íslandi.

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Undanfarin ár hefur fátækt verið rannsökuð út frá ýmsum sjónarhornum. Skortur er þó á íslenskum rannsóknum sem fanga upplifun og reynslu þeirra sem lifðu við fátækt og þröngbýli á árum áður. Tilgangur rannsóknarinnar var að vekja athygli á mögulegum áhrifum slíkra skilyrða á framtíð einstaklinga og dýpka almenna vísindalega þekkingu á efninu. Ásamt því að gefa viðmælendum rými til að koma upplifunum sínum á framfæri og varpa ljósi á reynslu sína, sem einkenndist af fátækt og þröngum heimilisaðstæðum í æsku. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og átta opin einstaklingsviðtöl voru tekin við fimm konur og þrjá karlmenn á aldursbilinu 64-86 ára. Niðurstöður benda til þess að kröpp kjör hafi haft áhrif á líf þátttakenda á marga vegu. Samtímis sýna niðurstöður að stuðningur fjölskyldu og samfélags geti haft jákvæð áhrif á það að takast á við erfiðleika af þessu tagi. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að fjölskylda og tengsl geti haft áhrif á uppvöxt og félagslegan stuðning og að minningar um liðin lífsskeið kunni að hafa áhrif á fólk á efri árum lífs þeirra. Seigla, útsjónarsemi og síðar aukin tækifæri til atvinnulífs eru þættir sem virtust geta unnið gegn neikvæðum áhrifum fátæktar og þröngbýlis. Hugarfar og viðhorf einstaklinga höfðu einnig áhrif, oft voru einstaklingar með jákvæða sýn á aðstæður sínar og tókust á við þær með skapandi hugsun. Þá ber að nefna að reynsla og upplifanir eru einstaklingsbundnar og því er ekki víst að úrtakið endurspegli allt þýðið. Á niðurstöðum má sjá hvernig félagslegur- og samfélagslegur stuðningur höfðu afgerandi áhrif á líf þessara einstaklinga.
Source: Skemman
Author: Sandra Natalia Gunnsteinsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996449530
Cites: 49
Cited by:
Related to: 10