Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Skóli án aðgreiningar hefur verið ríkjandi stefna í menntamálum á Íslandi allt frá því að Salamanca-yfirlýsingin var samþykkt af Sameinuðu þjóðunum árið 1994. Skóli án aðgreiningar felst í því að öll börn, óháð fötlun eða námsgetu, hafi rétt á því að sækja menntun í sinn heimaskóla og fá þar viðeigandi stuðning og námsefni sem hentar þeirra getu. Talið var að skóli án aðgreiningar myndi koma í veg fyrir félagslega einangrun barna með sérþarfir og auka vináttusambönd þeirra við jafnaldra án sérþarfa. Félagsleg staða barna með þroskahamlanir og aðrar sérþarfir hefur lítið verið rannsökuð hérlendis en erlendar rannsóknir benda til þess að skóli án aðgreiningar komi ekki í veg fyrir félagslega einangrun þessara barna. Þvert á móti benda rannsóknir til þess að börn með þroskahömlun og einhverfu sem ganga í almenna skóla eigi færri vini, hafi verri sjálfsmynd, séu frekar þolendur eineltis og finni til meiri einmanaleika en jafnaldrar þeirra sem ekki hafa þroskahömlun eða einhverfu. Allt bendir til þess að mikil þörf sé á yfirgripsmikilli rannsókn á félagslegri stöðu barna með þroskahamlanir og einhverfu í almennu skólakerfi á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Bergný Ármannsdóttir 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996542142
