Work

Sköpun til framtíðar: sköpun sköpunarvers

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Lokaverkefni þetta fjallar um niðurstöður rannsóknar sem gerð var meðal stjórnenda, kennara og bókasafns- og upplýsingafræðinga sem starfa í sköpunarverum í grunnskólum. \nMarkmið rannsóknarverkefnisins er að kynnast því hver eru viðhorf, þekking og reynsla þeirra af starfsemi sköpunarvera og hvernig þau styðja við nám og skólastarf með áherslu á starf skólasafna. Hvaða hindranir hafa verið í vegi fyrir sköpunarverum og hvað styður við þau? Eigindlegum rannsóknaraðferðum var beitt, tekin voru átta opin viðtöl og þau greind með aðferðum grundaðrar kenningar. \nNiðurstöðurnar voru flokkaðar í ytri aðstæður, innleiðingu og starfið. Niðurstöðurnar sýna að starfsemi sköpunarvera og skólasafna fer vel saman og æskilegt er að innleiða starfsemi sköpunarvera inn á öll skólasöfn. Niðurstöðurnar gefa vísbendingar um að skólasöfn standa höllum fæti þegar að úthlutun fjármagns kemur þar sem regluverk í kringum þau taka ekki á úthlutununum. Skilningur umsjónarmanna í sköpunarverunum var sambærilegur milli skóla en útfærslur þeirra ólíkar. Útfærslurnar ráðast af aðstöðu, stjórnendum og umsjónarmönnum sköpunarvers á hverjum stað. Ákveðin ágreiningur kom upp um hvort að sköpunarver eigi að hafa tíma í stundatöflu eða eigi að vera opið með frjálsu flæði. Í starfi sköpunarveranna er lögð áhersla á vinnuferli skapandi hugsunar þar sem nemendur fá tækifæri til að breyta hugmyndum í raunveruleika. Styðja verður við það með fjölbreyttum verkefnum og kennsluaðferðum sem höfða til innri áhugahvata þeirra. Umsjónarmenn sköpunarvera þurfa meðvitað að vekja áhuga nemenda á sköpunarverunum og fá þá til að koma á eigin forsendum. Til þess þurfa þeir að höfða til áhugahvatar þeirra og geta þeir nýtt sér ýmsar aðferðir markaðsfræði.
Source: Skemman
Author: Einar Eysteinsson
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996560081
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10