Skuldbinding nemenda til náms. Stuðningur foreldra, kennara og þörf fyrir stuðning og ráðgjöf skóla
Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í rannsókninni er sjónum beint að skuldbindingu ungmenna gagnvart námi og tengslum við stuðning foreldra og skóla. Skuldbinding er metinn með tilliti til skólahegðunar og tilfinninga í garð náms og skóla. Þátttakendur eru 1842 16 og 17 ára nemendur úr öllum framhaldsskólum landsins og fór könnunin fram árið 2007. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að stuðningur foreldra og skóla spái fyrir um hegðunarlega og tilfinningalega skuldbindingu nemenda. Því meiri sem hvatning og þátttaka foreldra er í námi barna sinna, því meiri sem stuðningur er frá kennurum, og því minna sem nemendur þurfa á stuðningi skóla að halda, því jákvæðari eru þeir í garð skólans, því jákvæðari er námshegðun þeirra og því minni neikvæða skólahegðun sýna þeir. Niðurstöðurnar koma fram hvort sem um stelpur eða stráka er að ræða og teknu tilliti til menntunar foreldra. Jafnframt benda niðurstöður til að stelpur sýni að jafnaði jákvæðari námshegðun og hafi jákvæðari tilfinningar í garð námsins en strákar. Strákar virðast aftur á móti sýna neikvæðari skólahegðun en stelpur. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja fyrri rannsóknir á þessu sviði. Vonast er til að niðurstöðurnar nýtist foreldrum, kennurum og náms- og starfsráðgjöfum framhaldsskólanema til að styðja þá námslega og hjálpa þeim að auka skuldbindingu sína til náms.
Source: Skemman
Author: Svandís Sturludóttir 1968
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996580298
