Snemmfullorðinsár fósturbarna
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Fósturbörn eru viðkvæmur hópur í samfélaginu og þurfa oft sérhæfða stuðningsþjónustu. Rannsóknir sýna að ungmenni sem hafa reynslu af fóstri standa oft höllum fæti miðað við jafnaldra sína á snemmfullorðinsárum sínum. Fyrrum fósturbörn standa oft illa varðandi fjárhags- og atvinnustöðu en algengt er að þau hafi lágt menntunarstig. Líkamleg og andleg heilsa fyrrum fósturbarna er einnig oft ekki góð en flest fósturbörn hafa lent í einhverjum áföllum á lífsleiðinni og hafa mörg hver lítið stuðningsnet í kringum sig. Fósturbörn virðast jafnframt vera í sérstökum áhættuhóp fyrir afbrotahegðun, misnotkun á áfengi eða vímuefnum og ótímabærri þungun unglinga. \n Þrátt fyrir þetta er vitað að mörg fósturbörn hafa byggt upp seiglu og reiðir almennt séð vel af á snemmfullorðinsárum sínum. Það sem einna helst einkennir fyrrum fósturbörn sem hafa byggt upp seiglu er góð tengslamyndun, stöðugleiki í fóstri, jákvæð sjálfsmynd og velgengi í skóla. Innri áhugahvöt, sjálfstraust og trú á eigin getu skiptir líka máli fyrir myndun seiglu hjá fyrrum fósturbörnum. Formlegur stuðningur yfirvalda á borð við aðstoð við nám eða húsnæði getur einnig haft mikil áhrif á myndun seiglu hjá fósturbörnum en mismunandi er eftir löndum hvernig slíkum stuðning er háttað. \nÁ Íslandi geta fósturbörn framlengt fósturdvöl sinni til 20 ára aldurs en eftir að henni lýkur tekur almenn félagsþjónusta við ef ungmenni sem hafa verið í fóstri þurfa á frekari stuðningi á að halda. Fyrrum fósturbörn geta ásamt öðru átt rétt á námsaðstoð, fjárhagsaðstoð, eða aðstoð með húsnæði frá félagsþjónustu í því sveitarfélagi sem þau eiga lögheimili í. Vísbendingar eru þó um ungmenni sem hafa reynslu af fóstri á Íslandi gætu þurft á frekari stuðningi á að halda í formi jafningjafræðslu eða hagsmunasamtaka. \nLykilorð: Fósturbörn; Lífsafkoma; Seigla; Stuðningur; Félagsráðgjöf.
Source: Skemman
Author: Þórhildur Elfa Þórisdóttir 1994
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996638427
