Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Stafrænt kynferðisofbeldi er vaxandi vandamál sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu ár og hefur ákveðin vitundarvakning átt sér stað í samfélaginu. Með vaxandi tækni eykst umfang stafræns kynferðisofbeldis, dreifing efnis á veraldarvefnum verður auðveldari og vettvangurinn umfangsmeiri. \nTilgangur: Tilgangur þessarar ritgerðar var að skoða hvað felst í stafrænu kynferðisofbeldi, algengi þess og áhrif á þolendur. \nAðferð: Verkefni þetta byggir á fræðilegri samantekt. Heimilda var aflað í gagnabönkunum PubMed, Cinahl, Science Direct og Scopus með ákveðnum leitarorðum. Leitarvélin Google var notuð við leit að íslenskum heimildum. Gagnaleit miðaðist við unglinga (10-19 ára) og ungmenni (15-24 ára). Miðað var við að nota heimildir frá síðustu 10 árum en ein eldri heimild var notuð. \nNiðurstöður: Stafrænt kynferðisofbeldi felur í sér dreifingu á ýmsu kynferðislegu efni í leyfisleysi. Birtingarmyndir þess eru ýmsar s.s. myndir, myndbönd og hljóðbrot. Það hefur reynst erfitt að samræma skilgreiningu þess í fræðigreinum. Samkvæmt þeim rannsóknum sem skoðaðar voru er algengi stafræns kynferðisofbeldis á bilinu 1,1-32%. Afleiðingar þess geta verið ýmsar og alvarlegar, má þar meðal annars nefna sálrænar afleiðingar, s.s. lágt sjálfsmat, sjálfsvígshugsanir, þunglyndi og kvíða. Einnig getur stafrænt kynferðisofbeldi haft neikvæðar afleiðingar á fjárhag, starfsframa, fjölskyldutengsl og valdið erfiðleikum með traust. Algengt er að þolendur upplifi þolendaskömm, þá sérstaklega konur. \nÁlyktanir: Rannsóknir á stafrænu kynferðisofbeldi og breytingar á lögum eru mikilvægar til að hægt sé að ákvarða hversu stórt vandamálið er og til að minnka þá mótstöðu sem þolendur mæta í samfélaginu. Hjúkrunarfræðingar þurfa að hafa þekkingu á vandamálinu til að vera í stakk búnir til að aðstoða þennan hóp fólks. \nLykilorð: Kynboð, stafrænt kynferðisofbeldi, afleiðing og samþykki.
Source: Skemman
Authors: Kolbrún Gunnarsdóttir 1989, Ragna Björnsdóttir 1992
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Law
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996664600
