Work

Skimun fyrir Lynch heilkenni með alhliða litun fyrir mispörunarpróteinum í ristil-, endaþarms-, maga- og legbolskrabbameinum

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Skimun fyrir Lynch heilkenni (LS) með ónæmislitunum fyrir mispörunarviðgerðarpróteinum (e. mismatch repair; MMR) hófst á meinafræðideild Landspítala árið 2017 í greindum ristil-, endaþarms- (REKM) og legbolskrabbameinum (LBKM) og árið 2021 í magakrabbameinum (MKM). Markmið rannsóknarinnar er að kanna árangur skimunar fyrir LS árin 2020-2022 þ.m.t. litunarhlutfall æxla, hlutfall æxla með vöntun á MMR-próteinum (e. MMR deficiency; dMMR), hlutfall LS og hvort réttum uppvinnsluferlum var fylgt. \nAðferðir: Rannsóknin er aftursýn. Fenginn var listi frá Krabbameinsskrá yfir öll greind REKM og LBKM árin 2020-2022 og MKM árin 2021-2022. Farið var inn í sjúkraskrár og upplýsinga aflað um meinafræðiþætti, niðurstöður litana og hvort réttum litunar- og meðferðarferlum var fylgt. Arfgerðir sjúklinga í raðgreiningargagnagrunni deCODE voru síðan samkeyrðar við niðurstöður verklags til að reikna næmi og sértæki vefjalitunar. \nNiðurstöður: Af 522 REKM voru 429 (82,2%) lituð og af þeim voru 63 (14,7%) dMMR. Af 102 LBKM voru 88 (86,3%) lituð og af þeim voru 19 (21,6%) dMMR. Af 26 MKM voru 18 (69,2%) lituð en engin voru dMMR. Réttu verkferli var fylgt í 90,5% tilvika hjá REKM og 94,7% tilvika hjá LBKM og vísanir í erfðaráðgjöf/próf gerðar í öllum tilvikum nema einu. Næmi vefjalitunar reyndist 80% og sértæki 85,4%. \nUmræður: Skimun fyrir LS með ónæmislitun fyrir MMR-próteinum greindi réttilega einstaklinga í áhættuhóp fyrir LS í 80% tilvika. Réttu verkferli var fylgt oftar og eftirfylgd með vísunum í erfðaráðgjöf/próf var betri en á fyrstu þremur árum skimunar. Rannsóknin bætir við vaxandi grunn upplýsinga um gæði skimunar fyrir LS á Íslandi.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996665086
Cites: 48
Cited by:
Related to: 10