Work

Stafrænt kynferðisofbeldi : algengi og afleiðingar myndsendinga án samþykkis meðal ungmenna

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Eftir því sem stafrænni tækni hefur fleygt fram síðastliðin ár hefur stafrænt kynferðisofbeldi færst í vöxt, bæði erlendis sem hérlendis. Stafrænt kynferðisofbeldi var fyrst skilgreint í íslenskum lögum fyrr á þessu ári þegar frumvarp til laga um kynferðislega friðhelgi var samþykkt en með þeim breytingum voru skýr skilaboð send um að ofbeldi af þessu tagi sé litið alvarlegum augum. Innlendar sem erlendar rannsóknir sýna að stærsti þolendahópur þessarar tegundar ofbeldis eru ungmenni. Auk þess hafa erlendar rannsóknir sýnt fram á margvíslegan skaða fyrir þolendur og staðhæfa fræðimenn að afleiðingar stafræns kynferðisofbeldis séu að mörgu leyti þær sömu og fyrir líkamlegt kynferðisofbeldi. Markmið þessarar rannsóknar er tvíþætt. Í fyrsta lagi var markmiðið að kanna með netkönnun algengi stafræns kynferðisofbeldis, í formi myndsendinga án samþykkis og hótana um slíkt, meðal ungmenna (15-24 ára). Í annan stað var markmiðið að grafast fyrir um afleiðingar brotaþola stafræns kynferðisofbeldis hér á landi. Auk þess var markmið rannsóknarinnar að kanna viðhorf almennings til kynferðislegra myndsendinga. Netkönnun var lögð fyrir almenning hér á landi og var óskað eftir svörum frá öllum aldurshópum en áhersla rannsóknarinnar var á ungmenni. Rannsóknarspurningarnar sem höfundur leitaðist við að svara voru eftirfarandi: 1. \tHversu algengar eru kynferðislegar myndsendingar án samþykkis meðal ungmenna? 2. Hversu algengar eru hótanir um kynferðislegar myndsendingar án samþykkis meðal ungmenna? 3. Hverjar eru helstu afleiðingar fyrir brotaþola stafræns kynferðisofbeldis? Til að svara rannsóknarspurningunum kynnti höfundur sér erlendar og innlendar rannsóknir á viðfangsefninu og framkvæmdi netkönnun með hentugleikaúrtaki (N=1600). Niðurstöður sýna að 8,5% svarenda höfðu lent í því að kynferðislegt myndefni af þeim var áframsent án þeirra samþykkis og 10,5% var hótað því en um 90% svarenda voru 24 ára eða yngri þegar atvikið átti sér stað. Helstu afleiðingar meðal þolenda voru kvíði, minnkað sjálfstraust, erfiðleikar með að treysta, reiði, þunglyndi, lystarleysi og sjálfvígshugsanir. \nLykilorð: Stafrænt kynferðisofbeldi, ungmenni, kynferðislegar myndsendingar án samþykkis, hótanir, afleiðingar, algengi.
Source: Skemman
Author: Olga Kristín Jóhannesdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996774683
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10