Work

Tengsl líkamsþyngdarstuðuls við öndunarhreyfingar og vanstarfsemi í grindarboti. Forrannsókn.

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Offita er vaxandi heilsufarsvandamál um allan heim í dag. Offita er stór áhættuþáttur fyrir þróun áreynsluþvagleka. Á meðal kvenna er áreynsluþvagleki algengasta form þvagleka. Hann getur haft neikvæð áhrif á daglegt líf þeirra, andlega líðan og félagslega virkni. Ástæður áreynsluþvagleka má oft rekja til vanstarfsemi í grindarbotnsvöðvum. Áreynsluþvagleki kemur fram við líkamlegt álag eins og hósta, hnerra, hlaup eða hopp. Öndunarmynstur einstaklinga ákvarðast m.a. af gerð, samhverfu, takti og tíðni öndunarhreyfinga. Óstarfræn öndun verður þegar samstilltar hreyfingar brjóstkassa og kviðs raskast. Offita eykur álagið á öndunarkerfið og veldur m.a. grynnri öndun. Offita er einnig áhættuþáttur fyrir þróun ýmissa öndunarfærasjúkdóma eins og astma og kæfisvefn. Rifjaöndun er eitt form óstarfrænnar öndunar sem oft má sjá hjá einstaklingum með aukna öndunartíðni vegna offitu. Samstilltur samdráttur milli grindarbotnsvöðva, kviðvöðva og þindar er mikilvægur þáttur í þvagheldni. Þetta samstarf gæti verið truflað hjá konum með vanvirkni í grindarbotnsvöðvum. \nMarkmið: Að kanna áhrif líkamsþyngdarstuðuls á öndunarhreyfingar hjá konum sem greinst hafa með áreynsluþvagleka. Niðurstöður öndunarmælinga voru bornar saman við tiltæk viðmiðunargildi. Fyrri samanburðarhópur samanstóð af viðmiðunargildum fyrir öndunarhreyfingar kvenna, og sá seinni af niðurstöðum fyrri rannsóknar á öndunarhreyfingum kvenna með áreynsluþvagleka. \nAðferðir: Rannsókn þessi er forrannsókn. Þátttakendur voru þægindaúrtak sex kvenna með líkamsþyngdarstuðul > 30 kg/m2 á aldrinum 36–79 ára. Allir þátttakendur voru greindir með áreynsluþvagleka á Þvaglekamóttöku 11A á Landspítalanum við Hringbraut með stöðuluðum prófum. Öndunarhreyfingar voru mældar með öndunarhreyfingamælinum Andra. Einnig svöruðu þátttakendur spurningalista til þess að hægt væri að meta bakgrunnsbreytur. \nNiðurstöður: Niðurstöður rannsóknar benda til aukinna öndunarhreyfinga í neðri hluta brjóstkassa hjá rannsóknarhóp við hvíldaröndun, miðað við samanburðarhópa. Það gæti bent til þess að rifjaöndun sé ríkjandi við hvíldaröndun hjá konum með LÞS > 30 kg/m2 og áreynsluþvagleka. Niðurstöður benda einnig til minnkaðra öndunarhreyfinga í kvið við djúpöndun hjá þátttakendum, miðað við báða samanburðarhópa. Það gefur vísbendingar um að þindaröndun sé minnkuð við djúpöndun hjá konum í offitu sem greindar hafa verið með áreynsluþvagleka. Varasamt er þó að alhæfa út frá niðurstöðum vegna lítils úrtaks, enda aðeins um forrannsókn að ræða. \nÁlyktun: Vísbendingar eru um að áreynsluþvagleki og offita hafi áhrif á öndunarmynstur kvenna, og að tengsl séu á milli þessara þátta. Vegna smæðar úrtaksins er erfitt að alhæfa nokkuð þar um. Nauðsynlegt er því að sjúkraþjálfarar horfi á einstaklinginn í heild sinni, með það að markmiði að finna samhengi milli orsakar og afleiðingar. Huga þarf að öndun og ástandi kviðvöðva, bakvöðva og grindarbotnsvöðva við meðferð á áreynsluþvagleka. Að sama skapi er mikilvægt að skimað sé fyrir vandamálum í grindarbotni, og nærliggjandi vöðvum, þegar skjólstæðingar glíma við offitu eða einhverskonar öndunarvandamál. Veikleiki í einum hluta sívalnings getur haft víðtæk áhrif og mögulega valdið óstarfrænni öndun. Rannsaka þarf þessa þætti frekar með stærra þýði og mögulega með samanburðarhóp til þess að fá tölfræðilega marktækar niðurstöður.
Source: Skemman
Author: Aníta Ósk Einarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996787044
Cites: 73
Cited by:
Related to: 10