Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl milli tölvunotkunar og matarvenja á meðal íslenskra unglingsstúlkna með úrvinnslu úr gagnasafni íslenska hluta alþjóðlegu Health Behaviours in Schoolaged Children (HBSC) rannsóknarinnar. Rannsóknin er lögð fyrir fjórða hvert ár en notast var við svör 3.431 unglings í 10.bekk 2013/2014. Þar af voru 1.696 stúlkur. Niðurstöður sýndu ekki marktæka samvirkni á kyni og tölvunotkun varðandi neyslu ávaxta, grænmetis, vatns, sælgætis, snakks og sykraðs goss. Minni neysla hollari fæðutegundanna fylgdi í kjölfar aukinnar tölvunotkunar. Fjölbreytudreifigreining sagði ekki til um að samskipti við jafningja á samfélagsmiðlum hefði áhrif á það hvort stúlkur snæði morgunmat (F(3,3282) = 0,38 , p < 7,68) eða kvöldmat (F(3,3244) = 0,71 , p < 5,48) með foreldrum. Þátttakendur sem spiluðu tölvuleiki fjórar klukkustundir eða meira á dag höfðu tilhneigingu til að borða minna af ávöxtum, grænmeti og drekka minna vatn en ella á virkum dögum. Ávaxta- og grænmetisát fór alla jafna lækkandi hjá stúlkum í kjölfar aukinnar tölvuleikjaspilunar. Samvirkni var milli kyns, spilunar tölvuleikja virka daga og ávaxtaáts F(8,3315) = 3,21 , p < 0,01 og grænmetisneyslu F(8,3254) = 2,21 , p < 0,24. \nLykilorð: tölvunotkun, matarvenjur, tölvuleikir, unglingsstúlkur.
Source: Skemman
Author: Elva Rún Gunnarsdóttir 1989
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Nutrition and Dietetics
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Keywords: computer use, dietary habits, adolescents, elementary school students, screen time, fruit and vegetable intake, water intake, social media, social media use, gender differences, parental communication, health behavior, Icelandic adolescents, HBSC study, tenth grade students, physical activity, sedentary behavior, alcohol consumption, substance use, mental health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996911162
