Work

Tengsl innri hvatningar og sjálfræðis í starfi

Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessa rannsóknarverkefnis til meistaraprófs í mannauðsstjórnun er að rannsaka tengsl sjálfræðis í starfi og innri hvatningar. Rannsóknarspurningin er eftirfarandi: Er jákvæð fylgni á milli sjálfræðis í starfi og innri hvatningar? Verkefnið byggir á rannsókn Bard Kuvaas frá árinu 2009 og kenningarfræðilegur grunnur þess er sjálfræðiskenningin um hvatningu (e. self-determination theory of motivation) þeirra Deci og Ryan. Settar eru fram rannsóknartilgátur sem byggja á þessari kenningu. \n Í fyrsta hluta ritgerðar minnar er farið yfir tilgang og markmið ofangreindar rannsóknar og helstu hugtök eins og sjálfræði, hvatningu og helstu þarfakenningar. Í framhaldi af því er áðurnefnd kenning Decis og Ryans kynnt. Í seinni hlutanum er farið yfir aðferðarfræði rannsóknarinnar og helstu niðurstöður kynntar og ræddar. Gerð var megindleg rannsókn í tveimur einkafyrirtækjum og einu í opinberum rekstri á höfuðborgasvæðinu. Rannsóknin var send til 343 starfsmanna þessara fyrirtækja í gegnum Google-doc-forritið á netinu, en af þeim svöruðu alls 97. Svarhlutfall var því 28,80%. \nNiðurstöður gefa til kynna að jákvæð fylgni sé á milli sjálfræðis í starfi og innri hvatningar. Það sama á við stuðning yfirmanns við sjálfræði og hæfni í starfi og innri hvatningu. Ekki reyndist vera fylgni á milli innri hvatningar og sterkra innri tengsla verkefna. Svo virðist því sem aukið sjálfræði geti verið áhrifaríkt verkfæri til að hvetja starfsmenn til dáða og til að skapa starfsvettvang, þar sem starfsmenn eru drifnir áfram af framkvæmdagleði og áhuga á því sem þeir eru að fást við. Þessi rannsókn leiðir einnig í ljós, hve mikilvægt það er að stjórnendur styðji starfsmenn sína til aukins sjálfræðis og sýni þeim með beinum og óbeinum hætti að þeir séu hæfir í starfi.
Source: Skemman
Author: Kristín Hrund Whitehead 1975
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6996954912
Cites: 31
Cited by: 1
Related to: 10