Work

Tilhneiging sykursjúkra barna og unglinga til þess að þróa með sér þunglyndi og áhrif þess á meðferðarheldni

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Sykursjúk börn og unglingar eru í aukinni hættu á þróa með sér þunglyndi heldur en líkamlega heilbrigðir jafnaldrar. Þessi aukna áhætta er mikið áhyggjuefni þar sem að sálfræðileg vandamál eins og þunglyndi hafa tengsl við lélegri blóðsykurstjórnun hjá börnum og unglingum með sykursýki 1. Mikill annmarki er á rannsóknum á tengslum sykursýki og þunglyndis sem og áhrifum þess á meðferðarheldni. Þörf er á fleiri rannsóknum, en vísbendingar eru um að þunglyndi dragi úr virkni sem er nauðsynleg til þess að sinna verkefnum sem snúa að meðferðarheldni sykursýkinnar.
Source: Skemman
Authors: Áslaug Karlsdóttir 1987, Þórey Heiðarsdóttir 1989
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997036555
Cites: 136
Cited by:
Related to: 10