Uppeldisaðstæður og kannabisnotkun unglinga
Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða hvort stuðningur og eftirlit foreldra og samsetning fjölskyldunnar hefði áhrif á kannabisnotkun unglinga. Notast var við gögn úr rannsókninni „Heilsa og lífskjör skólanema“. Þátt tóku 1918 nemendur í 10. bekk og af þeim svöruðu 1897, eða 98,9%. Rannsóknarspurningarnar voru eftirfarandi: Er kynjamunur á kannabisnotkun unglinga? Hefur stuðningur og aðhald foreldra áhrif á kannabisnotkun unglinga? Eru tengsl á milli uppeldishátta foreldra og kannabisnotkunar unglinga? \nHöfundar töldu megindlega aðferð henta best til að svara rannsóknarspurningunum. Við úrvinnslu gagna var kannabisnotkun unglinga borin saman við kyn, fjölskyldugerð, stuðning, aðhald og uppeldishætti foreldra. Þótt drengir greindu oftar frá notkun kannabisefna en stúlkur var munurinn ekki marktækur. Einnig kom fram að unglingar sem búa hjá báðum líffræðilegum foreldrum sínum neyta sjaldnast kannabisefna. Því meira eftirlit sem foreldrar hafa með unglingum, þeim mun ólíklegra er að þeir neyti kannabisefna. Neikvætt samband var á milli stuðnings foreldra og kannabisnotkunar unglinga. Niðurstöður leiddu í ljós að unglingar sem fá mikinn stuðning frá foreldrum sínum eru líklegri til að neyta kannabisefna. Börn staðfastra foreldra neyta sjaldnast kannabisefna, en börn hinna vanrækslusamari neyta þeirra oftast.
Source: Skemman
Authors: Ingibjörg Rós Kjartansdóttir 1982, Kristín Bergsdóttir 1982
Language: Icelandic
Subfield: Pharmacology (medical)
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997079449
