Vinnustaðamenning Samgöngustofu
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Vinnustaðamenning hefur áhrif á starfsemi, árangur og frammistöðu skipulagsheilda. Um er að ræða ákveðna samloðun meðal starfsfólks og er menningin því óáþreifanlegur, tilfinningalegur þáttur innan skipulagsheilda sem mótast af hegðun, samskiptum, gildum, trú og viðhorfum starfsfólks. \nMarkmið rannsóknarinnar er að skoða vinnustaðamenningu Samgöngustofu sem tók til starfa 1. júlí 2013 eftir sameiningu fjögurra stofnana og greina hverjir styrkleikar og veikleikar hennar eru. Spurningalisti byggður á Denison líkaninu var lagður rafrænt fyrir starfsfólk Samgöngustofu í byrjun nóvember 2014 og alls tóku 74 starfsmenn þátt í rannsókninni. Spurningalistinn skiptist í fjórar menningarvíddir sem mæla markmið, samræmi, þátttöku og aðlögunarhæfni en menningareinkenni líkt og þessi geta haft áhrif á mótun vinnustaðamenningar og frammistöðu skipulagsheilda. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að vinnustaðamenning Samgöngustofu telst frekar veik þar sem öll menningareinkennin eru undir viðmiðunareinkunn og teljast til aðgerðabils. Styrkleikar menningarinnar liggja helst í þeirri stefnu og þeim áformum sem stofnunin hefur mótað, því virðist vera sem að starfsfólk sé meðvitað um stefnu og tilgang starfseminnar. Veikleikar menningarinnar felast í skorti á samhæfingu og samþættingu í starfsemi milli ólíkra sviða og deilda stofnunarinnar. Einnig er þörf á að auka þátttöku, hæfni og samvinnu starfsfólks ásamt því að móta og skilgreina framtíðarsýn stofnunarinnar. Niðurstöður leiða í ljós að nokkur munur mælist á viðhorfi starfsfólks til vinnustaðamenningarinnar eftir því hverri af sameinaðri stofnun það tilheyrði fyrir eða hóf störf eftir sameiningu. Einnig má greina út frá samanburði við niðurstöður fyrri rannsókna á vinnustaðamenningu annarra skipulagsheilda að vinnustaðamenning Samgöngustofu mælist mun veikari. Ástæður þess kunna að vera hve nýlega sameining Samgöngustofu átti sér stað ásamt því að tiltölulega stutt er síðan að nýr forstjóri tók til starfa og að stofnunin fluttist í sameiginlegt húsnæði. Álykta má að þessir þættir geti haft áhrif á að óvissa ríkir meðal starfsfólks um ýmsa þætti starfseminnar og mótun vinnustaðamenningar Samgöngustofu.
Source: Skemman
Author: Erna Oddný Gísladóttir 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997141594
