Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Fjölgun hefur orðið á umsóknum fjölskyldna um alþjóðlega vernd á Íslandi á síðustu mánuðum, en þar til nýlega hafa málefni fjölskyldna í slíkum sporum, í orðræðu og riti, farið fremur hljótt hér á landi. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun og reynslu barna og foreldra sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi af mótttöku, íslensku samfélagi og áhrifaþáttum á sálfélagslega velferð. Rannsóknin er eigindleg rannsókn og byggjast niðurstöður hennar á hálfstöðluðum viðtölum við börn og foreldra þeirra sem leitað hafa alþjóðlegrar verndar á Íslandi og fagaðila sem koma að þjónustu þeirra. Niðurstöður sýna að heitasta þrá foreldra er að veita börnum sínum öruggari og betri framtíð. Margvíslegir þættir í umsóknarferlinu hafa áhrif á sálfélagslega velferð fjölskyldumeðlima, s.s. biðtíminn eftir svari, virkni og líðan fjölskyldunnar, möguleikar til félagslegra tengsla og möguleiki barnanna á að lifa sem eðlilegustu lífi. Margt er vel unnið í þágu barnanna en einnig margt sem betur má fara. Möguleikar þeirra til að tjá sig um eigin upplifun, líðan og aðstæður eru mjög takmarkaðir, barnvæn biðaðstaða er ekki fyrir hendi hjá öllum þjónustuaðilum og upplýsingar um réttindi barna og við hverju þau mega búast í ferlinu ekki aðgengilegar. Gera þarf börn sýnilegri og virkari í umsóknarferlinu í heild, í samræmi við Barnasáttmála Sþ. \nLykilorð: Alþjóðleg vernd, hæli, barn, fjölskylda, sálfélagsleg líðan, velferð, Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Source: Skemman
Author: Helga Guðmundsdóttir 1983
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997142610
