Work

Verkir og verkjameðferð : sálræn og félagsleg áhrif

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar heimildasamantektar er að skoða samband sálræns og félagslegs ástands í tengslum við verki. Ásamt því að ræða hvernig hægt er að hjálpa sjúklingum með verki að auka skilningi á tengslum þar á milli og með því aðstoða þá við að hafa betri stjórn á verkjunum. Rannsóknarspurningarnar eru: Hvaða áhrif hefur sálrænt ástand á verki? Hvaða áhrif hafa félagslegir þættir á verki? Hvað er hægt að gera til að stuðla að betri verkjameðferð? Verkir eru mjög algengir og talið er að um fjórir af hverjum tíu einstaklingum þjáist af langvinnum verkjum. Verkir eru ekki aðeins líkamlegt fyrirbæri, umhverfið skipti einnig miklu máli í þessum skilningi, hvernig einstaklingurinn er, hvernig hann er fyrirkallaður og hver áreitin eru í kringum hann. Verkjaupplifun kemur fram í mismunandi myndum þar sem sálræn og félagsleg áhrif hafa mikið um það að segja hvernig og hve mikið einstaklingar finna til og hvaða áhrif verkir hafa á líf þess einstaklings sem upplifir þá. Erfitt getur verið að meta verki og áhrif verkjameðferðar vegna þess að verkir eru huglægir og enginn nema sá sem finnur fyrir þeim getur vitað hvernig þeir lýsa sér nákvæmlega. Heimildir komu úr rannsóknum og fræðiritum sem gerð hafa verið um áhrifaþætti á verki og meðferðarúrræðum tengdum þeim. Höfundar leitast við að útskýra hvað verkir eru ásamt lífeðlisfræði þeirra. Markmiðið er að skoða félagslega og sálræna aðalþætti sem hafa áhrif á verkjaupplifunina. Það eru bjargráð, persónuleiki, kynferði, fjölskylda, menning, þunglyndi, sálræn áföll og ofbeldi. Einnig er fjallað um meðferðir við verkjum og eru þá teknar fyrir lyfjameðferðir, fordómar og fíkn þeim viðkomandi. Að lokum er svo fjallað um óhefðbundnar meðferðir, en undir þær falla hugræn atferlismeðferð, hreyfing, nálastungur, nudd, slökun, smáskammtalækningar og athyglisdreyfing. Markmið höfunda er að útskýra hvernig þessir hlutir vinna saman. \nLykilhugtök: Sálrænir verkir, félagslegir verkir, verkjameðferðir.
Source: Skemman
Authors: Helga Margrét Ingvarsdóttir 1990, Sæunn Gunnur Pálmadóttir 1977
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997251691
Cites: 132
Cited by:
Related to: 10