„Á vettvangi finnst mér ég alls ekki gera stórkostlega hluti en skjólstæðingar okkar upplifa það allt öðruvísi“ Upplifun og reynsla starfsmanna af starfi sínu í VoR-teyminu
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi fjallar um upplifun starfsmanna af starfi sínu hjá Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar (VoR-teymi). Teymið veitir heimilislausum einstaklingum með flókinn og fjölþættan vanda, þjónustu. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á upplifun og reynslu starfsmanna í starfi sínu í VoR-teyminu, öðlast skilning á viðhorfum þeirra til starfsins og skilja betur, hvaða þættir stuðla að hvatningu og ánægju í starfi. Einnig var kannað hvaða þættir ollu álagi og hvert gildi handleiðslu í starfi væri að mati teymismeðlima. Rannsókninni var því ætlað að ná sem bestri heildarmynd af starfi og líðan teymismeðlima. Rannsóknin var starfsrannsókn (e. practice research) en slíkar rannsóknir fela það í sér að rannsakandi vinnur allt rannsóknarferlið í samstarfi við hópinn sem rannsóknin beinist að. Tekin voru tíu eigindleg viðtöl við alla teymismeðlimi VoR-teymisins auk þess sem þátttökuathugun var framkvæmd til að öðlast skilning á starfi teymisins. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þátttakendur láta sér mjög annt um velferð þjónustunotenda og þeir beittu svipuðum nálgunum í starfi, en þær einkenndust af virðingu, heiðarleika, fordómaleysi og auðmýkt í garð þjónustunotenda. Í rannsókninni kom fram nokkur óánægja meðal þátttakenda vegna skorts á viðeigandi aðbúnaði á vettvangi. Þá var einnig bent á þörf fyrir bætt upplýsingaflæði og skýrar verklagsreglur. Þá leiddu niðurstöður rannsóknarinnar í ljós að handleiðsla hefði mikið gildi fyrir teymismeðlimi. \n \nLykilorð: Heimilisleysi, VoR-teymi, húsnæði fyrst, skaðaminnkun, áfallamiðuð nálgun, teymi, handleiðsla, starfsrannsókn.
Source: Skemman
Author: Sibel Anna Ómarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Public Administration
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997315097
