Work

Útivinnandi mæður og starfsánægja samhliða heimilishaldi

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Starfsánægja er mikilvægur þáttur á vinnustað til þess að haldast í starfi en það eru margir þættir sem að geta haft áhrif á ánægju í starfi. Togstreita getur myndast milli samspils vinnu og einkalífs en rannsóknir hafa sýnt að útivinnandi mæður eru stöðugt með hugann við börnin. Barnauppeldi og heimilishald hefur í gengum tíðina þótt vera einna helst verkefni móður á hverju heimili og hvernig mæðrum tekst í uppeldi endurspeglar hvernig þeim er tekið á vinnustað og í samfélaginu. Í nútímasamfélagi hefur verið unnið að því að koma á jafnrétti kvenna og karla á vinnumarkaði og einnig þar sem báðir aðilar koma að heimilishaldi og barnauppeldi. \nMarkmið verkefnisins var að skoða hvort mæður í samfélaginu í dag upplifi starfsánægju í vinnu sinni samhliða heimilishaldi og barnauppeldi. Markmið rannsóknarinnar var að svara rannsóknarspurningunum; (1),,Hvernig upplifa mæður samspil milli vinnu og einkalífs og hvaða áhrif hefur það á ánægju í starfi?” (2) ,,Skiptir aldur barna eða starfshlutfall máli”. Gögnin sem unnið var með eru úr rannsókn sem við lögðum fyrir í febrúar 2019. Staðlaður spurningarlisti var settur inn á netið til hópa sem ætlaðir eru mæðrum og var hann opin þátttakendum í eina viku og alls voru 372 konur sem að svöruðu spurningalistanum í heild sinni en spurningalistinn innihélt meðal annars spurningar um starfsánægju á vinnustað og samspil vinnu og heimilis. Til að skoða almenna starfsánægju voru þættirnir starfsánægja, aldur barna og starfshlutfall skoðaðir. Niðurstöðurnar sýndu að mæður væru almennt ánægðar (74%) með hlutskipti sín í atvinnu en samt höfðu um 67% mæðra upplifað kulnun í starfi á seinustu 12 mánuðum. Starfshlutfall hafði áhrif á samspil heimilis og vinnu en mæður í 75-100% starfi voru meira ósammála og jafnvægi væri á milli vinnu og einkalífs og þær komust sjaldnar yfir það sem þyrfti að gera varðandi heimili eftir vinnu en þær sem voru í 75% eða minna starfshlutfalli en staðreyndin er sú að 83% mæðra voru í 75-100% starfshlutfalli. Einnig sýndu niðurstöður að þær sem voru ekki ánægðar í starfi (67%) voru mjög sjaldan eða aldrei ánægðar með hvernig gengi að sinna atvinnu og heimili. Niðurstöður sýna að álag er á mæðrum en segja ekki til um hvort það er tilkomið vegna heimilis eða vinnu. \n \n \nLykilorð: Mæður, starfsánægja, kulnun í starfi.
Source: Skemman
Authors: Rósa Dröfn Pálsdóttir, Stefanía Rut Hansdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997315934
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10