Work

„Við erum á leiðinni inn í framtíðina“. Upplifun starfsfólks Reykjavíkurborgar af stafrænni umbreytingu borgarinnar

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í upplifun starfsfólks Reykjavíkurborgar af stafrænni umbreytingu borgarinnar. Einnig var markmiðið að skoða hvernig stafræn umbreyting Reykjavíkurborgar fellur að aðferðum breytingastjórnunar. Rannsóknin var unnin eftir eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við níu viðmælendur. Allir viðmælendur störfuðu hjá Reykjavíkurborg, ýmist á þróunar- og nýsköpunarsviði eða velferðarsviði. Lögð var áhersla á að viðmælendur hefðu reynslu af stafrænum umbreytingaverkefnum hjá borginni. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að upplifun starfsfólks Reykjavíkurborgar af stafrænni umbreytingu borgarinnar ætti margt sameiginlegt með aðferðum breytingastjórnunar. Niðurstöðurnar ítreka einnig þörf stafrænnar umbreytingar Reykjavíkurborgar, þar sem tækniþróun verður sífellt meiri sem eykur kröfur notenda á þjónustu á rafrænu formi. Viðmælendur töldu ávinning stafrænnar umbreytingar borgarinnar margþættan og sögðu hann helst koma fram í bættri þjónustu við íbúa og betra starfsumhverfi fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar. Misjöfn tækniþekking bæði notenda og starfsfólks gæti hins vegar verið áskorun. Niðurstöður leiddu jafnframt í ljós mikilvægi hlutverks stjórnenda og leiðtoga í breytingaferli, jákvæð áhrif upplýsingamiðlunar sem og mikilvægi þess að virkja starfsfólk í breytingum.
Source: Skemman
Author: Sólrún Día Friðriksdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Urban Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997354649
Cites: 25
Cited by:
Related to: 10