Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Aukin krafa um skilvirkni innan heilbrigðiskerfisins kallar á betri nýtingu mannauðs, m.a. með aukinni samvinnu, skýrum verksviðum og hlutverkaskiptingu. Góð samvinna heilbrigðisstarfsfólks eykur gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga. Hún hefur jákvæð áhrif á starfsumhverfið og getur dregið úr starfsmannaveltu. Sýn lækna og hjúkrunarfræðinga á faglegri samvinnu er ólík og sýnt hefur verið fram á hlutverkaágreining. Erlendar rannsóknir benda til þess að svæfingahjúkrunarfræðingar hafi jákvæðari viðhorf til samvinnu en svæfingalæknar. \nTilgangur: Að greina þau viðhorf sem ríkja til samvinnu, hlutverka og ábyrgðar meðal fagaðila í svæfingaþjónustu á Íslandi. \nAðferð: Lýsandi samanburðarrannsókn milli tveggja fagstétta. Send var rafræn könnun í mars 2020 á alla meðlimi Fagdeildar svæfingahjúkrunarfræðinga (N = 115) og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands (N = 53). Til að mæla viðhorf til faglegrar samvinnu lækna og hjúkrunarfræðinga var notast við mælitæki Jefferson (heildarskor 15-60 stig, hærra skor bendir til jákvæðara viðhorfs). Mælitækið samanstendur af fimmtán fullyrðingum og skiptist niður í fjögur þemu; sameiginleg menntun og samskipti í starfi (sjö atriði), umönnun eða lækning (þrjú atriði), sjálfstæði hjúkrunarfræðings (þrjú atriði) og vald læknis (tvö atriði). Einnig var spurt um hlutverk og starfssvið svæfinga-hjúkrunarfræðinga og þátttakendur beðnir um að lýsa hlutverki þeirra. Notuð var lýsandi tölfræði og meðaltöl hópanna borin saman með t-prófi. \nNiðurstöður: Svarhlutfall var 56% (n = 94). Innri áreiðanleiki heildarlistans metinn með alfastuðli var 0,749. Viðhorf svæfingahjúkrunarfræðinga til samvinnu (M = 53,58; sf ± 3,23) voru jákvæðari (p < 0,001) en viðhorf svæfingalækna (M = 47,52; sf ± 5,61). Um helmingi þátttakenda (48%) fannst hlutverk svæfingahjúkrunarfræðinga á Íslandi ekki vel skilgreint og skýrt. Rúmlega 70% svæfingalækna og 20% svæfingahjúkrunarfræðinga voru sammála því að meginhlutverk svæfingahjúkrunarfræðinga væri að framfylgja fyrirmælum svæfingalækna og tífalt hærra hlutfall svæfingalækna taldi að læknar ættu að hafa ráðandi vald í öllum heilbrigðismálum. \nÁlyktanir: Viðhorf til samvinnu í svæfingaþjónustu á Íslandi eru jákvæð en áhyggjuefni er hve óljóst hlutverk svæfingahjúkrunarfræðinga er. Vinna þarf skipulega að því að skýra og móta verksvið svæfingahjúkrunarfræðinga til að bæta heilbrigðisþjónustu, auka starfsánægju og styrkja fagstéttina. \nLykilorð: Svæfingaþjónusta, svæfingahjúkrunarfræðingur, svæfingalæknir, samvinna, starfssvið, teymisvinna, viðhorf, mælitæki Jefferson
Source: Skemman
Author: Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: General Health Professions
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997393285
