What is Personal is Political: How Different Communication Strategies of the 2024 Presidental Campaigns for Katrín Jakobsdóttir and Halla Tómasdóttir Reached Voters
Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Samfélagsmiðlar leika sífellt stærra hlutverk í lífi fólks. Á síðustu árum hefur fréttaneysla almennings færst að miklu leyti yfir á samfélagsmiðla og verða þeir sífellt fyrirferðameiri í pólitískri umræðu. Samfélagsmiðlar eru taldir vera hentugt tæki fyrir stjórnmálamenn til þess að ná til kjósenda í kosningabaráttu og þá sérstaklega yngri kjósenda. Ritgerð þessi byggir á eigindlegri rannsókn þar sem markmið hennar var að varpa ljósi á upplýsingamiðlun í framboðum Katrínar Jakobsdóttur og Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum 2024 og hvernig sú upplýsingamiðlun skilaði sér til kjósenda. Tekin voru sex hálfstöðluð (e. semi-structured) viðtöl annars vegar við kjósendur og hins vegar við fólk sem starfaði innan framboðsteyma Höllu og Katrínar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að persónuleg hlið frambjóðenda hafði mikil áhrif á hvernig fólk upplifði frambjóðendur og sat það mun meira eftir í hugum kjósenda heldur en málefni frambjóðenda. Sömuleiðis skipti miklu máli fyrir kjósendur hvernig frambjóðendur komu fram í fjölmiðlum og hvernig þeir nýttu sér ólíkar leiðir til að ná til kjósenda. Í svörum þeirra sem störfuðu innan framboðsteyma Höllu og Katrínar mátti greina að framboðin tvö fóru nokkuð ólíkar leiðir til að ná til kjósenda. Framboð Höllu einblíndi á að koma sér á framfæri í gegnum samfélagsmiðla á meðan að framboð Katrínar var með meiri áherslu á að Katrín talaði við fólk augliti til auglits og að það fengi að kynnast henni upp á nýtt. Niðurstöður rannsóknarinnar voru að mestu leyti í samræmi við það sem fyrri erlendar og innlendar rannsóknir hafa sýnt. Niðurstöðurnar varpa ljósi á hvernig samfélagsmiðlar geta mótað pólitíska og samfélagslega umræðu og hvernig þeir geta nýst sem öflugt kosningatól.
Source: Skemman
Author: Birta Hannesdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Social Media and Politics
Subfield: Communication
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997410413
