Work

Þú lifir ekki í þessu starfi nema þú treystir fólki : áherslur stjórnenda í frístundamiðstöðvum Reykjavíkurborgar og þjónandi forysta

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Stjórnun mannauðs er ábyrgðasamt og oft á tíðum flókið hlutverk. Að líða vel í starfi er flestum hjartans mál og forystu- eða stjórnunarstíll getur haft mikið að segja um það hvernig hægt er að ná sem mestu út úr starfsfólki á sem jákvæðastan máta. \nMarkmið rannsóknarinnar er að kanna áherslur stjórnenda í frístunda-miðstöðvum Reykjavíkurborgar til að efla og tryggja starfsánægju starfsmanna sinna. Ennfremur er markmið rannsóknarinnar að líta á áherslur stjórnenda og bera þær saman við hugmyndafræði þjónandi forystu. Unnin var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru tólf hálfstöðluð viðtöl við stjórnendur frístundamiðstöðva sem fengið hafa viðurkenningu fyrir ánægju starfsfólks í könnuninni „Stofnun ársins - Borg og Bær“. \nFyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að ákveðnir forystustílar innan skipulagsheilda geta haft jákvæð áhrif á eflingu, traust, vöxt og þroska einstaklinga sem leitt getur til aukinnar ánægju í starfi. Flestar rannsóknir, sem gerðar hafa verið á samspili þjónandi forystu og starfsánægju, hafa verið mældar út frá afstöðu starfsmanna til síns næsta yfirmanns. Því gefa niðurstöður þessarar rannsóknarinnar innsýn í þær aðferðir sem stjórnendurnir sjálfir leggja áherslu á innan þeirra skipulagsheilda sem nú þegar er vitað að viss ánægja ríkir með meðal starfsmanna. \nNiðurstöðurnar benda til þess að áherslur stjórnenda frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar litist af frelsi og trausti til starfsfólks síns, hvatningu, virðingu, auðmýkt og jafningjabrag. Niðurstöður benda einnig til þess að innan þeirra stofnana sé unnið ómeðvitað með miklum hætti í samræmi við hugmyndafræði þjónandi forystu. Gefa niðurstöður vísbendingu um að stjórnunarhættir innan stofnananna séu eflandi og hvetjandi fyrir starfsfólk í átt að aukinni starfsánægju. Niðurstöður rannsóknarinnar endurspegla að miklu leyti fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á samspili þjónandi forystu og starfsánægju. Með niðurstöðum rannsóknarinnar má draga þá ályktun að með stjórnun eftir hugmyndafræði þjónandi forystu innan skipulagsheilda megi auka þroska, árangur og starfsánægju fólks.
Source: Skemman
Author: Bogi Hallgrímsson 1980
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6997463189
Cites: 50
Cited by: 1
Related to: 10