Áhrif einkenna á einhverfurófi á sjálfsmat. Samanburður á sjálfsmati og mati annarra á einkennum einhverfu hjá fullorðnum skyldmennum vísitilfella
Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsókn þessi var gerð í samstarfi við Íslenska Erfðagreiningu og Greiningar- og Ráðgjafarstöð Ríkisins. Gögnum var safnað á þeirra vegum og voru þátttakendur 2802 fullorðin skyldmenni barna með einhverfu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna próffræðilega eiginleika tveggja kvarða (DSIM-s/i og SRS) sem ætlað er að mæla einhverfurófseinkenni hjá fullorðum ættingjum einstaklinga sem greinst hafa með einhverfu, sem og að kanna tilgátu þess efnis að innsæi í eigin hegðun tapist með auknum alvarleika einkenna eins og þau mælast á DSIM-s og DSIM-i. Þátttakendur voru fengnir til þess að meta einhverfueinkenni hjá sjálfum sér með DSIM-s listanum, auk þess sem annar matsaðili sem tengdist þátttakanda á einhvern hátt var einnig beðinn um meta einhverfueinkenni þátttakanda með DSIM-i og/eða SRS listanum. Próffræðilegir eiginleikar listanna voru kannaðir með þáttagreiningu, þar sem þriggja þátta lausn fékkst á öllum listum. Innra samkvæmni reyndist einnig gott. Kynjamunur var til staðar og hélst stöðugur í gegnum rannsóknina. Karlar mældust alltaf með meiri einkenni heldur en konur á öllum listum, hvort sem um var að ræða mat þeirra sjálfra eða mat annarra. Skorun matsmanna eftir tengslum þeirra við þátttakanda voru könnuð. Marktækur munur var á heildarskorum eftir tengslahópum. Skorun matsmanna á SRS listanum var borin saman við skorun matsmanna á DSIM-i listanum. Þar kom í ljós að heildarskor sem matsmenn gáfu þátttakendum fóru ekki eingöngu eftir því hvaða tengslahóp þeir tilheyrðu heldur einnig eftir hvaða tegund lista þeir svöruðu. Mikinn breytileika var að finna á meðalskori tengslahópa eftir því hvort um var að ræða SRS listann eða DSIM-i. Niðurstöður úr sjálfsmati voru bornar saman við niðurstöður úr mati annarra og kom enginn munur fram á meðaltali heildarskors hjá hópunum tveimur. Samband sjálfsmats og mats annarra var einnig kannað með því að raða heildarskorum á alvarleikakvarða og sambandið kannað fyrst út frá mati annarra og síðan út frá sjálfsmati. Sambandið hélst ekki stöðugt á milli samaburða sem bendir til þess að hér sé ekki um raunverulegan skort á innsæi að ræða eftir alvarleiki einkenna. Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa því til kynna að notkun sjálfsmatslista sé réttmæt og áreiðanleg matsaðferð við mat á einkennum víðari svipgerðar einhverfu hjá fullorðnum.
Source: Skemman
Author: Sigurrós Friðriksdóttir 1981
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998367846
