Áhrif greinandi hugsunar, innsæis og menntunar á trú á samsæriskenningar og samsæriskenndan hugsunarhátt
Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fólk er mis líklegt til að trúa samsæriskenningum og eru margir þættir taldir stuðla að því. Einstaklingsmunur er á því hvernig fólk vinnur úr upplýsingum þar sem sumir hafa tilhneigingu til að hugsa á greinandi hátt en aðrir stóla frekar á innsæi sitt. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að trú á samsæriskenningar og samsæriskenndur hugsunarháttur hafa neikvæð tengsl við greinandi hugsun en jákvæð tengsl við innsæi. Auk þess benda rannsóknir til þess að með aukinni menntun sé fólk ólíklegra til að trúa á samsæriskenningar og aðhyllast samsæriskenndan hugsunarhátt. Tilgátur þessarar rannsóknar voru þrjár: Að krefjandi leturgerð ýti undir greinandi hugsun og dragi því úr trú á samsæriskenningar og samsæriskenndum hugsunarhætti. Að trú á samsæriskenningar og samsæriskenndur hugsunarháttur hafi neikvæð tengsl við greinandi hugsun en jákvæð tengsl við innsæi. Að fólk með hærri menntun trúi síður á samsæriskenningar og hafi síður samsæriskenndan hugsunarhátt, og að greinandi hugsun miðli sambandinu. Netkönnun var lögð fyrir (n = 1144) sem samanstóð af þremur sjálfsmatskvörðum, CMQ, REIm og samsæriskenningakvarða. Niðurstöður sýndu neikvæð tengsl milli krefjandi leturs og trú á samsæriskenningar og samsæriskennds hugsunarháttar en ástæðan var ekki vegna þess að krefjandi letur ýtti undir greinandi hugsun. Neikvæð tengsl fundust milli greinandi hugsunar við trú á samsæriskenningar en jákvæð tengsl milli innsæis við trú á samsæriskenningar og samsæriskennds hugsunarháttar. Neikvæð tengsl voru milli menntunar og trú á samsæriskenningar og samsæriskennds hugsunarháttar. Greinandi hugsun var miðlunarbreyta í sambandi menntunar og trúar á samsæriskenningar. Niðurstöðurnar sýna fram á gagnsemi þess að stuðla að greinandi hugsun og leggja áherslu á rannsóknir til að koma í veg fyrir útbreiðslu samsæriskenninga.
Source: Skemman
Authors: Berglind Ýr Karlsdóttir 1989, Laufey Svafa Rúnarsdóttir 1996, Ragnhildur Andrésdóttir Kjerúlf 1996
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998376794
