Work

Áhrif þjálfunar hreyfikerfis öndunar eftir kransæðahjáveituaðgerð á lungnarúmmál, öndunarhreyfingar og styrk öndunarvöðva

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Inngangur: Kransæðahjáveituaðgerð (CABG) veldur skerðingu á lungnastarfsemi og öndunarhreyfingum. Rannsakendur hafa sett fram þá kenningu að skurðtæknin við CABG, vegna notkunar IMA-haka þegar innri vinstri brjóstholsslagæð er notuð sem græðlingur, valdi tognunaráverka á hreyfikerfi öndunar. Afleiðingar áverkans séu skerðing í lungnarúmmáli, öndunarvöðvastyrk og öndunarhreyfingum. \nMarkmið: Að meta áhrif þjálfunar hreyfikerfis öndunar eftir CABG, áhrif hennar á lungnarúmmál, öndunarvöðvastyrk og öndunarhreyfingar. \nAðferðir: Í þessari einblinduðu samanburðarforkönnun var sjúklingum sem fóru í valkvæða CABG þar sem IMA-haki var notaður, slembiraðað í íhlutunarhóp eða viðmiðunarhóp. Lungnarúmmál, öndunarvöðvastyrkur og öndunarhreyfingar voru mældar fyrir aðgerð og viku eftir aðgerð. Báðir hópar fengu meðferð sjúkraþjálfara fyrir og eftir aðgerð. Íhlutunarhópur gerði auk þess innöndunarvöðvaþjálfun með hvatningartæki fyrir innöndun með áherslu á stigvaxandi hreyfiferil, tvisvar á dag meðan á legu stóð. Auk þess voru þátttakendur íhlutunarhóps greindir með tilliti til tognunaráverka á öndunarvöðva og liðamót rifja. Niðurstöður voru settar upp í Microsoft Excel og reiknuð út hlutfallsleg breyting milli mælinga fyrir hvern þátttakanda. \nNiðurstöður: Þátttakendur voru sex karlmenn á aldrinum 58-82 ára sem fóru í valkvæða CABG á Landspítala á tímabilinu febrúar til apríl 2020. Allir þátttakendur voru með eðlilegt öndunarform í hvíld fyrir og eftir aðgerð og íhlutunarhópur einnig í djúpri öndun. Viðmiðunarhópur var með óstarfrænt öndunarform í djúpri öndun fyrir og eftir aðgerð. Viku eftir aðgerð sýndu allar lungnarúmmálsmælingar verri útkomu miðað við fyrir aðgerð hjá báðum hópum, nema í hámarksfráblásturshraða hjá einum í íhlutunarhópi. Inn- og útöndunarvöðvastyrkur lækkaði eftir aðgerð hjá öllum nema einum þátttakanda. Í hvíldaröndun jukust kviðarhreyfingar hjá íhlutunarhópi á bilinu 5-65,3% en hjá viðmiðunarhópi var breytingin frá 43,6% skerðingu upp í 73,9% aukningu. Öndunarhreyfingar í djúpri öndun jukust umtalsvert (á bilinu 36,9-108,1%) hjá einum þátttakanda í íhlutunarhópi á öllum mælistöðum nema einum, en hjá öðrum þátttakanda varð skerðing (á bilinu 31,4-71%) á öllum mælistöðum nema einum. Viðmiðunarhópur var með skertar öndunarhreyfingar í djúpri öndun eftir aðgerð, þó voru tveir þátttakendur með lítilsháttar aukningu á hægri lágrifjahreyfingum (17,5%) og hægri kviðarhreyfingum (11,2%). \nÁlyktun: Ekki er hægt að draga ályktanir af þessari rannsókn vegna fárra þátttakenda.
Source: Skemman
Author: Þórhildur Hrafnsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998429147
Cites: 79
Cited by:
Related to: 10