Work

Áhugahvöt meðal nemenda sem hafa fengið kennslu samkvæmt aðferðinni Stærðfræði byggð á skilningi barna (CGI)

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Í verkefninu er leitast við því að svara rannsóknarspurningunni ,,Hvers eðlis er áhugahvöt meðal nemenda sem hafa fengið kennslu samkvæmt aðferðinni Stærðfræði byggð á skilningi barna?“ Framkvæmd var tilviksrannsókn í Melaskóla hjá nemendum í 5. bekk. Bekkurinn er undir umsjón Kristjönu Skúladóttur og hefur hún tileinkað sér kennsluhætti í stærðfræði sem byggð er á skilningi barna. Hugsmíðihyggja hefur verið helsta uppspretta hugmynda um að nemendur eigi að læra stærðfræði með skilningi. Það er ábyrgð kennarans að leiða nemendur upp á æðri stig hugsunar þar sem þeir eru í aðalhlutverki og kennarinn skapar viðeigandi aðstæður til náms. Gengið er út frá sama útgangspunkti og nemendur vinna að verkefnum á eigin forsendum til þess að þroskast í námi. Til þess að svara rannsóknarspurningunni var sjónum fyrst og fremst beint að innri og ytri áhugahvöt nemenda og mikilvægi tungumálsins í stærðfræðinámi. \n \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að nemendur sem iðka stærðfræði undir slíkri leiðsögn reynast vera jákvæðir gagnvart námsgreininni stærðfræði og námi í henni. Þeim virðist bæði þykja skemmtilegt og hvetjandi að glíma við námsefnið á sínum eigin forsendum þar sem stuðst er við fjölbreyttar kennsluaðferðir. Innri áhugahvöt virðist ríkjandi meðal nemenda sem hafa fengið slíka kennsluhætti. Niðurstöður tilviksrannsóknarinnar eru einnig í samræmi við þær rannsóknir sem áður hafa verið gerðar.
Source: Skemman
Author: Auður Böðvarsdóttir 1988
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998451701
Cites: 6
Cited by:
Related to: 10