Work

Áhrif breiðari undirstöðuflatar og útsnúnings um mjöðm í hnébeygju: Hreyfilýsing ökklaliðar við mismunandi aðferðir í hnébeygju

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Veikur grunnur er fyrir því hvernig rétt framkvæmd hnébeygju á að vera í sambandi við staðsetningu fóta, álags, hraða og þreytustig. \nMarkmið: Meginmarkmið rannsóknarinnar er að athuga hver áhrif breiðari undirstöðuflata og útsnúnings um mjöðm hefur á hreyfilýsingu ökkla í mismunandi aðferðum í hnébeygju. \nAðferðir: Rannsóknin er megindleg þversniðsrannsókn á 10 karlkyns körfuboltaiðkendum í efstu deild á Íslandi sem hafa stundað styrktarþjálfun og voru þeir valdir með hentugleikaúrtaki. Þátttakendur framkvæmdu alls 45 hnébeygjur í fimm mismunandi útgáfum með lyftingastöng á baki með 20kg, 60kg og 100kg lóðum. Útgáfur hnébeygja voru: hnébeygja með axlarbreidd á milli fóta með tær beint fram, axlarbreidd með útsnúning um mjöðm, breiður undirstöðuflötur með tær beint fram, breiður undirstöðuflötur með útsnúning um mjöðm. Notast var við hreyfigreiningarkerfi í þrívídd við söfnun gagna og greiningu. Við tölfræðigreininguna var gerð línuleg blönduð fjölþáttaaðhvarfsgreining þar sem gráður voru skoðaðar í neðstu stöðu hnébeygju, með hverri aðferð fyrir sig. \nNiðurstöður: Því dýpra sem þátttakendur fara í hnébeygju því meira kreppist ökkli (e. dorsiflexion) óháð tegund hnébeygja og þyngd (p<.001). Ökklakreppa minnkar hins vegar þegar aukin beygja (e. flexion) verður um mjöðm í hnébeygjum óháð þyngd (p<.001). Marktækur munur er á hreyfiútslagi ökkla í neðstu stöðu hnébeygja á milli útgáfa hnébeygja þar sem minni ökkla kreppa verður við breiðari undirstöðuflöt með og án útsnúnings um mjöðm (p<.001). Þyngd hefur áhrif á hreyfilýsingu hnjáliða þar sem þátttakendur fara styttra í hnébeygju. \nÁlyktun: Þátttakendur komast dýpra í hnébeygju með minni þyngd og útsnúning um mjöðm (e. external rotation). Því gæti verið æskilegt fyrir körfuboltaiðkendur að framkvæma hnébeygjur með axlabreidd á milli fóta og útsnúning um mjöðm til að hámarka ökklakreppu í hnébeygju. Einnig gæti verið æskilegt að framkvæma hnébeygjur með breiðari undirstöðuflöt og útsnúning um mjöðm þar sem þátttakendur fara dýpra í hnébeygju
Source: Skemman
Author: Emil Karel Einarsson
Language: Icelandic
Field: Medicine
Keyword: squat depth
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998458063
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10