Áhrif tjáskiptaörðugleika á líðan einstaklinga með skammtíma barkaraufartúbu á gjörgæslu og notkun á tjáskiptatækni til að bæta samskipti: Kerfisbundin fræðileg samantekt
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Í flestum tilfellum er rödd notuð sem tjáskiptaform. Í alvarlegum veikindum getur komið upp sú staða að einstaklingar missa þetta tjáskiptaform og þurfa þá að leita annarra leiða til að geta haft samskipti. Hægt er að styðjast við margskonar aðferðir, hluti og tækni til að hjálpa við þessi samskipti. \nTilgangur: Að kanna reynslu einstaklinga sem fá skammtíma barkaraufartúbu á gjörgæsludeildum af því að hafa samskipti við heilbrigðisstarfsfólk. Einnig að kynna sér þá tjáskiptatækni sem notuð hefur verið til að auðvelda samskipti einstaklinga með barkaraufartúbu og heilbrigðisstarfsfólks. Slík íhlutun getur stuðlað að betri hjúkrunarmeðferð, þar sem einstaklingurinn verður fær um að tjá sig fyrr og betur um eigin líðan ásamt því að taka þátt í eign bataferli. \nAðferð: Kerfisbundin fræðileg samantekt. Stuðst við aðferð Joanna Briggs stofnunarinnar og gæðamatskalar frá stofnunni notaðir til að gæðameta greinar sem valdar voru úr niðurstöðu leitar. PRISMA-yfirlýsingin höfð til hliðsjónar við framsetningu niðurstaðna. Heimildaleit framkvæmd í gagnasöfnum PubMed, CINAHL og Web of Science. Afturvirk snjóboltaleit framkvæmd í greinum sem fundust við heimildaleit. Upplýsingar úr rannsóknunum voru settar fram með skipulegum hætti með „matrix“ aðferð og niðurstöður samþættar lóðrétt. \nNiðurstöður: Sextán rannsóknir sem birtar voru á árunum 2015-2022 uppfylltu inntökuskilyrðin. Niðurstöður rannsókna gáfu til kynna neikvæð áhrif á sálfélagslega líðan, líkamleg einkenni og bataferli. Rannsóknir á öðrum aðferðum en að nota rödd við samskipti voru dregnar saman ásamt árangri af notkun þeirra. \nÁlyktun: Það að stuðla að því að einstaklingar sem eru í öndunarvélameðferð og fá barkaraufartúbu geti tjáð sig sem fyrst í ferlinu hefur áhrif á bata. Þeir ná fyrr að tjá sig um vanlíðan og að fá tækifæri til að vera þátttakendur í eigin meðferð. Þróun verklagsreglna um hvernig haga eigi samskiptum við barkaþrædda einstaklinga er mikilvægur þáttur. \nLykilorð: Barkaraufartúba, gjörgæsla, samskipti, tjáskiptatækni
Source: Skemman
Author: Anna Marín Kristjánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: General Health Professions
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998472322
