Work

Áhrif viðbótarmeðferða og líkamsþjálfunar á heilbrigði sjúklinga með langvinna lungnateppu

Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Sjúklingar með langvinna lungnateppu (LLT) á stigi II-IV upplifa andnauð sökum skertrar lungnavirkni. Öndunarvöðvar starfa ekki sem skyldi og notkun hjálparvöðva við öndun eykst. Við líkamsþjálfun eða athafnir daglegs lífs kemur andþröng í veg fyrir að andrýmd aukist sem leiðir til mæði. Líkamsþjálfun eykur líkamlega getu ásamt því að minnka mæði og auka súrefnisupptöku vefja. Þjálfun virðist draga úr þunglyndi og kvíða og heilsutengd lífsgæði aukast. Mikilvægt er að vekja athygli á fleiri aðferðum til líkamsþjálfunar til að takast á við einkenni LLT. Líkamsþjálfun er mikilvægur þáttur í lungna-endurhæfingu og stuðlar að bættri lifun ásamt því að hamla framgangi sjúkdómsins. \nKannað var hvaða viðbótarmeðferðir, í formi æfinga, auk annarrar líkamsþjálfunar eru í boði fyrir sjúklinga með LLT og áhrif þeirra á líkamlega og andlega líðan sjúklinga og lífsgæði þeirra. \nGerð var fræðileg úttekt á klínískum rannsóknum um langvinna lungnateppu, líkamsþjálfun og viðbótarmeðferðir í formi þjálfunar. Leitað var fimm ár aftur í tímann og skilaði leitin 21 rannsóknargrein sem unnar voru niðurstöður úr. \nHelstu niðurstöður rannsókna sýna að lotuþjálfun er vænlegur kostur fyrir sjúklinga þar sem þeir upplifa minni mæði. Ástundun líkamsæfinga og lengri lifun LLT sjúklinga virðist tengjast en líkamsþjálfun getur að einhverju leyti dregið úr áhættuþáttum sem stuðla að hækkaðri dánartíðni. Rannsóknir benda til að stunda þurfi æfingar með langtímamarkmið í huga og eftirfylgni virðist auka æfingaheldni. Kínverskar æfingar og jóga virðast bæta líkamlega getu og lífsgæði sjúklinga með LLT. Rannsóknirnar benda til að kínverskar æfingar og jóga séu hættulausar og þolanlegar fyrir sjúklinga. Þol- og mótstöðuþjálfun virðist hafa víðtækari áhrif á lífsgæði heldur en jóga. Ekki virtist vera munur á einkennum kvíða og þunglyndis hjá sjúklingum sem iðkuðu jóga og þeim sem hlutu hefðbundna meðferð. \nÚt frá niðurstöðum má álykta að sjúklingar með LLT geti bætt líðan sína og lífsgæði með því að stunda kínverskar æfingar eða jóga, þol- og/eða mótstöðuæfingar. Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga sem vinna með sjúklingum með LLT að fylgjast með rannsóknum á nýjum hreyfimeðferðum sem geta bætt líðan sjúklinga. Mikilvægt er að þeir geti veitt ráðleggingar og hvatningu til sjúklinga um að gera æfingar til að efla heilsu sína.
Source: Skemman
Authors: Lára Viðarsdóttir 1967, Clara Guðjónsdóttir 1979
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998472657
Cites: 86
Cited by:
Related to: 10