Áhrif oxytósíns og misoprostóls á samdrátt og tjáningu oxytósínviðtakans í legi músa
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Blæðing í kjölfar fæðingar er ein helsta dánarosök kvenna við barnsburð, sérstaklega í þróunarríkjum. Uterotónísk lyf, lyf sem valda legvöðvasamdrætti, eru notuð til að meðhöndla blæðinguna. Oxytósín og misoprostól eru lyf sem eru oft notuð í þessum tilgangi. Oxytósín er taugahormón sem binst G-prótein tengdum viðtaka og veldur legvöðvasamdrætti í gegnum virkjun fosfólípasa C og innstreymis Ca2+ í umfrymi. Langvarandi meðhöndlun viðtakans með oxytósíni getur valdið ónæmi og minni tjáningu. Misoprostól er prostaglandín E1 hermiefni og getur bundist fjórum viðtökum, EP1, EP2, EP3 og EP4. Binding misoprostóls við EP1 eða EP3 veldur legvöðvasamdrætti en binding EP4 veldur slökun á legvöðva. Markmið verkefnisins var tvíþætt, annars vegar að kanna samverkandi áhrif oxytósíns og misoprostóls á legvöðvasamdrátt í óþunguðum músum og hins vegar að athuga hvort að tjáning oxytósínviðtakans breyttist eftir klukkustundalanga meðhöndlun með oxytósíni og misoprostóli. Samdráttur legvöðva úr óþunguðum músum (bæði gömlum og ungum) var mældur in vitro og var gefið ýmist einungis oxytósín, einungis misoprostól eða bæði oxytósín og misoprostól. Niðurstöður voru bornar saman við viðmið sem fengu ekkert inngrip. Tjáning oxytósínviðtakans í legi var mæld með qPCR. Oxytósín hafði marktæk áhrif á samráttarkraft í legi (EC50=4,3·10-10 M í gömlum músum, EC50=3,5·10-10 M í ungum) Misoprostól hafði ekki marktæk áhrif á samdráttarkraft í legi. Áhrif misoprostóls á legvöðvasamdrátt voru þrenns konar: jákvæð, neikvæð eða tvíþætt (neikvæð áhrif við lágan styrk en jákvæð við háan). Misoprostól stuðlaði hvorki að né dróg frá áhrifum oxytosíns. Tjáning oxytósínviðtakans breyttist ekki marktækt eftir klukkustundalanga meðhöndlun með oxytósíni og misoprostóli.
Source: Skemman
Author: Bríet Dögg Bjarkadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998480762
