Work

Áhrif tölvuleikjaspilunar á námsárangur

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif tölvuleikjaspilunar á námsárangur nemenda í 10.bekk grunnskóla á Íslandi. Þar að auki var athugað hvort munur væri á milli kynja og hvort munur væri á milli tölvuleikjaspilunar á virkum dögum og um helgar. Úrvinnslan kemur úr gagnasafni Health Behaviours in Schoolaged Children (HBSC) rannsókninni sem er styrkt af alþjóðarheilbrigðismálastofnun (WHO). Rannsókn þessi notast við íslenska útgáfu HBSC (Heilsa og lífskjör skólanema) og inniheldur úrtak sem nær yfir 3.618 unglinga sem voru í 10.bekk árið 2013-2014; þar af eru 1.731 stelpur og 1.783 strákar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á samvirkni milli tölvuleikjaspilunar og námsárangurs. Því lengri tíma sem einstaklingur ver í tölvuleikjaspilun, þeim mun verri námsárangur uppsker hann. Fjölbreytudreifigreining sýndi fram á fylgni milli námsárangurs og tölvuleikjaspilunar virka \ndaga óháð kyni (F(8,333) = 18,50 , p = 0,00); auk námsárangurs og tölvuleikjaspilunar um helgar óháð kyni (F(8,332) = 15,41 , p = 0,00). Kynjamunur sagði ekki til um að kyn hafi áhrif á einkunnir á virkum dögum (F(1,333) = 5,48 , p = 0,19) eða um helgar (F(1,332) = 6,63 , p = \n0,10). Samvirkni fannst ekki á milli tölvuleikjaspilunar virka daga og kyns (F(8,333) = 1,01 , p = 0,43); en marktækt var á milli tölvuleikjaspilunar um helgar og kyns (F(8,332) = 2,93 , p = 0,03).
Source: Skemman
Author: Rannveig Dögg Haraldsdóttir 1994
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998481506
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10