Áhrif efnishyggju í einstaklingsmiðuðu samfélagi - Áhersla á eiginhagsmuni á kostnað samfélagshegðunar og samfélagslegra gilda
Year: 2010
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt fram á skaðleg áhrif efnishyggju á vellíðan en rannsóknir á öðrum hugsanlegum neikvæðum afleiðingum efnishyggju eru skemmra á veg komnar. Ýtt hefur verið undir efnishyggin gildi sem fela í sér samkeppni og eiginhagsmuni síðustu áratugi hér á landi. Því var kannað hvort gildismat efnishyggjunnar, sem er í andstöðu við umburðarlyndi og að samþykkja aðra sem jafningja muni hafa neikvæð áhrif á samfélagshegðun og samfélagsleg gildi. Rannsókn með 157 háskólanemum leiddi í ljós að þeir sem eru efnishyggnir hafa Machiavellískari viðhorf, taka andfélagslegri ákvarðanir og leggja meiri áherslu á ytri markmið (peninga, frægð og frama) en innri markmið (persónulegur þroski, tilfinningaleg nánd og tengsl við samfélagið). Tengsl fundust ekki milli efnishyggju og samkenndar en aftur á móti reyndust þeir sem einblína á ytri markmið umfram innri markmið hafa minni samkennd. Konur reyndust hafa meiri samkennd og hafa síður Machiavellísk viðhorf en karlar. Að lokum reyndust ytri markmið spila stærra hlutverk í lífi viðskiptafræðinema en sálfræðinema. Þar sem Machiavellísk og andfélagsleg viðhorf fela í sér áherslu á eiginhagsmuni, eyðileggjandi samskiptastíl og skort á samkennd var ályktað að gildi sem einstaklingsmiðuð neyslusamfélög ýta undir, hafi skaðleg áhrif á samfélagshegðun og samfélagsleg gildi.
Source: Skemman
Authors: Valgerður Kristín Eiríksdóttir 1986, Elín Áslaug Ormslev 1986
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998495131
