Aldursbundin þróun stafræns ílags í málsambýli íslensku og ensku: Kortlagning á umfangi, eðli og áhrifsbreytum
Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Íslenskt málsamfélag hefur tekið hröðum breytingum síðustu ár í kjölfar breyttra samfélagsaðstæðna og mikilla tækniframfara. Þetta hefur gert það að verkum að málsambýli íslensku og ensku verður sífellt nánara. Vegna mikillar útbreiðslu stafrænnar tækni á Íslandi þar sem enska er meirihlutamál hefur samband málanna verið kallað stafrænt málsambýli. Tilgangur rannsóknarinnar Greining á málfræðilegum afleiðingum stafræns málsambýlis sem þessi ritgerð er unnin innan er að kanna stöðu íslensku og ensku í stafrænu málsambýli og hvaða áhrif það getur haft. \nÍ þessari ritgerð verður farið yfir möguleg áhrif þessarar nýju tegundar málsambýlis, sem felst í stafrænni notkun, og skoðað hvernig stafrænt ílag þátttakenda birtist í niðurstöðum rannsóknarinnar og hvers eðlis það er. Þar sem um nýja tækniþróun er að ræða var athugað hvort aldursmunur gæti bent til þróunar þar sem umfang virks, stafræns ílags á ensku eykst. Þá var athugað hvort viðhorf til enskunotkunar sýndu sömu aldursþróun þar sem vísbendingar eru að um yngra fólk sé jákvæðara gagnvart enskunotkun en þeir sem eldri eru. \nErlendar rannsóknir á tileinkun annars máls leiða í ljós að bæði magn og gæði stafræns ílags skipta máli fyrir máltileinkun ensku og mögulegt tvítyngi íslenskra barna og unglinga. Þótt stafrænt ílag hafi lítið verið rannsakað má álykta að innan þess sé gagnvirkt ílag sú ílagsgerð sem eykur mest líkur á tvítyngi íslenskra barna. Við kortlagningu stafræns ílags þátttakenda rannsóknarinnar kom skýr aldursmunur í ljós. Þetta bendir til þróunar þar sem umfang virks, stafræns ílags kemur til með að aukast í framtíðinni. Yngra fólk fær meira magn virks ílags á ensku í gegnum stafræna tækni en eldra fólk, til dæmis með tölvuleikjaspilum með samskiptum við aðra spilara. Innan yngsta aldurshópsins í rannsókninni, 13-15 ára einstaklinga, kemur einmitt í ljós að tölvuleikjaspilun með samskiptum við aðra spilara spáir að hluta til fyrir um virka enskunotkun þátttakenda. Aldursmunurinn kemur einnig fram í viðhorfunum, en yngri þátttakendur hafa jákvæðustu viðhorfin til virkrar enskunotkunar. Rannsóknin sýnir að þessi jákvæðni virðist hafa áhrif, þar sem viðhorfin spá fyrir um magn og gæði enskuílags.
Source: Skemman
Author: Dagbjört Guðmundsdóttir 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Linguistics and Language
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998497398
