Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um vaxandi notkun samfélagsmiðla á meðal unglinga og þau áhrif sem þeir geta haft á andlega og félagslega líðan unglinga. Þetta er gert með það að markmiði að benda á umfang samfélagsmiðla svo hægt sé að bæta fræðslu um þá fyrir unglinga í skólum á Íslandi. Fjallað verður um þá þætti sem ýta undir samfélagsmiðlanotkun unglinga, en það eru 1) félagsleg tengsl, 2) félagslegur samanburður, 3) áhættuhegðun, 4) samfélagsmiðlafíkn, 5) andleg vanlíðan og 6) léleg sjálfsmynd. Niðurstöður leiða í ljós að samfélagsmiðlar hafa mikil áhrif á líðan unglinga. Þannig hafa þeir hvað neikvæðustu áhrif á andlega líðan unglinga og mótun sjálfsmyndar þeirra þar sem félagslegur samanburður er mikill. Einnig komu upp félagslegir áhrifaþættir sem og áhættuhegðun í formi neteineltis, kynferðislegrar hegðunar og samfélagsmiðlafíknar. Jákvæð áhrif samfélagsmiðla eru að þeir geta bætt, styrkt og viðhaldið félagslegum tenglsum, sem er mjög mikilvægt á unglingsárunum.
Source: Skemman
Author: Gísli Frank Olgeirsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998526055
