Áhrif fjölmiðla á líkamsímynd stúlkna
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Könnuð voru tengsl innfæringar á líkamsímynd stúlkna. Megintilgáta var sú að ef stúlkur tileinka sér óraunhæfa staðla frá fjölmiðlum með innfæringu mundi það valda líkamskvíða. \nÞátttakendur voru 122 á aldrinum 18-24 ára. Þátttakendurnir svöruðu könnun sem var á netinu í gegnum hinn vinsæla kannanahugbúnað SurveyMonkey. Tveir staðlaðir listar voru notaðir, SATAQ sem mælir innfæringu og PASTAS sem mælir líkamstengdan kvíða á þeirri stundu sem listinn er tekinn. Niðurstöður leiddu í ljós að jákvæð tengsl voru á milli innfæringar og líkamskvíða. En ekki var þó hægt að segja að um orsakasamband var að ræða en þó hafði innfæring áhrif. Stúlkur upplifa líkamskvíða sérstaklega varðandi þyngd sína og hafa brenglaða mynd af líkama sínum.
Source: Skemman
Author: Helga Rún Árnadóttir 1990
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998529883
