Árangur tveggja habit reversal meðferða við húðkroppunar- og hárreytiröskun: Samanburður á berskjöldun og áreitastjórnun
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Markmið og tilgátur: Húðkroppunar- (Skin-picking disorder; SPD) og hárreytiröskun (Hair-pulling disorder; HPD) eru langvinnar geðraskanir sem geta haft töluverð áhrif á lífsgæði fólks. Skortur er á fjölbreyttum og gagnreyndum meðferðarleiðum á þessu sviði. Megin markmið rannsóknarinnar var að meta árangur meðferðar sem felur í sér habit reversal þjálfun (e. habit reversal training; HRT) og telst vera kjörmeðferð fyrir þessar raskanir. HRT var annarsvegar veitt með áreitastjórnun (e. stimulus control; HRT-SC) þar sem reynt er að ná stjórn á vísbendum í umhverfi sem ýta undir hegðunina (n = 10) eða með berskjöldun og svarhömlun (e. cue-exposure with response prevention; HRT-CERP) þar sem tekist er á við aðstæður og reynt að ná stjórn á hegðuninni sjálfri með því að venjast vísbendum (n = 10). Búist var við því að HRT-CERP meðferðin yrði jafn árangursrík og HRT-SC meðferðin. Einnig var búist við því að mælingar á „ekki alveg rétt tilfinningu“ myndu lækka meira í kjölfar HRT-CERP meðferðar þar sem tekist er á við óhjálplegar hugsanir sem tengjast ófullkomnun. Aðferð: Þátttakendur voru 20 kvenkyns háskólanemar sem náðu greiningarviðum fyrir HPD (n=5) eða SPD (n=15). Öllum þátttakendum var raðað af handahófi í eitt af tveimur meðferðarformum sem hvort um sig samanstóð af fjórum vikulegum meðferðarstundum. Meðferðarárangur var metinn með sjálfsmatsspurningalistum og hálfstöðluðum viðtölum sem mæla alvarleika húðkropps- og hárreytis. Niðurstöður: Marktækt dró úr alvarleika einkenna við lok meðferðar hjá báðum hópum (p < 0,05) og voru vísbendingar um að lækkunin væri meiri í kjölfar HRT-CERP meðferðarinnar. Áhrifastærð (Cohen‘s d) mismunar var á bilinu 1,28 til 2,96 og var hærri á öllum mælitækjum í HRT-CERP hópnum (2,27-2,96) samanborið við HRT-SC hópinn (1,28-1,30). Niðurstöður sýndu að það dró úr „ekki alveg rétt tilfinningu“ í kjölfar meðferðarinngripanna en ekki var marktækur munur á milli hópa. Umræða: Bæði HRT-SC og HRT-CERP reyndust árangursríkar leiðir til að draga úr HPD/SPD einkennum og benda niðurstöðurnar til að CERP sé gagnleg nýjung við meðhöndlun HPD/SPD einkenna sem áhugavert sé að þróa frekar. \n \nEfnisorð: Húðkroppunarrröskun, hárreytiröskun, habit reversal þjálfun, áreitastjórnun, vísbendaberskjöldun, svarhömlun, klínísk samanburðarrannsókn.
Source: Skemman
Author: Hulda María Einarsdóttir 1983
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998588490
