Atriðagreining á prófatriðum Leið til Læsis og HLJÓM-2 skimunarprófum í úrtaki nemenda í 1. bekk
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Atriðagreining var framkvæmd á völdum prófatriðum á lesskimunarprófunum HLJÓM-2 og Leið til læsis í úrtaki grunnskólanemenda í 1. bekk. HLJÓM-2 er skimunarpróf, hlutverk þess er að kanna hljóðkerfisvitund barna á síðasta ári leikskóla. HLJÓM-2 samanstendur af sjö prófhlutum en í þessari rannsókn eru aðeins seinustu tveir prófhlutar þess, orðhlutaeyðing og hljóðtenging, athugaðir. Leið til læsis er einnig lesskimunarpróf sem lagt er fyrir börn í 1. bekk í grunnskóla. Leið til læsis skiptist í þrjá megin hluta en í þessari rannsókn voru aðeins tveir þeirra athugaðir, málþroski og hljóðkerfisvitund. Þátttakendur voru börn fædd árið 2017, sem voru í 1. bekk í grunnskóla og 2018, sem voru á síðasta ári í leikskóla. Samtals voru þátttakendur 285 talsins, þar af 123 drengir og 162 stúlkur. Mælitæki rannsóknarinnar voru skimunarprófin HLJÓM-2 og Leið til læsis. Prófhlutarnir orðhlutaeyðing og hljóðtenging úr HLJÓM-2 voru lagðir fyrir þátttakendur í grunnskóla. Gögn úr Leið til læsis voru tekin saman af rannsakendum. Þátttakendur rannsóknarinnar höfðu svarað þeim atriðum fyrr á árinu í grunnskóla sínum. Niðurstöður úr atriðagreiningu gefa til kynna að þó nokkur atriði skimunarprófanna tveggja er vert að endurskoða. Kemur það ekki á óvart þar sem að HLJÓM-2 hefur ekki verið endurskoðað í 25 ár. Leið til læsis hefur sömuleiðis ekki verið endurskoðað í 15 ár. Niðurstöður þessarar rannsóknar leggja því mikilvægan grunn fyrir framtíðarrannsóknir, stöðlun og sameiningu á skimunarprófunum HLJÓM-2 og Leið til læsis.
Source: Skemman
Authors: Vala Dagsdóttir, Jón Eyjólfur Guðmundsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998744730
