Work

Að breyttu breytanda : hver er ferill breytinga á hugbúnaði í Íslandsbanka og hvernig samræmist sá ferill almennum ferlum breytingastjórnunar?

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að greina núverandi ferli breytinga í hugbúnaði í Íslandsbanka. Í upphafi var lögð fram eftirfarandi rannsóknarspurning: \nHver er ferill breytinga á hugbúnaði í Íslandsbanka og hvernig samræmist sá ferill almennum ferlum breytingastjórnunar? \nTil að leita svara við þessari spurningu er fræðilegur grunnur breytingastjórnunar og stjórnunar rýndur með áherslu á tengingu þar á milli. Gerð var rannsókn á upplifun starfsmanna Íslandsbanka á breytingastjórnun í upplýsingatækni. Viðtöl voru tekin við starfsmenn sem tengdust breytingastjórnunarferlinu, þau þemagreind og rýnt í niðurstöður. \nBreytingastjórnun hugbúnaðar í Íslandsbanka hefur breyst mikið til batnaðar síðustu ár. Upp kom gagnrýni á það hverjir tækju ákvarðanir um breytingar og í ljós kom að fyrirtækjamenning innan Íslandsbanka yfirvinnur oft á tíðum breytingastjórnunarferilinn. Gagnrýni kom fram um að upplýsing milli allra aðila væri verulega ábótavant. Helsta niðurstaða þessarar rannsóknar er sú að í raun hefur innleiðing þess ferils sem er við lýði ekki tekist fullkomlega. \nLykilorð: Breytingastjórnun, straumlínustjórnun, hugbúnaðarþróun, hugbúnaðardreifing, kerfisrekstur.
Source: Skemman
Author: Bragi Þór Svavarsson 1971
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998828527
Cites: 10
Cited by:
Related to: 10