Work

"Aðhlynning á heimavelli, besti staðurinn" : viðhorf foreldra til heimavitjana í ung- og smábarnavernd

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur: Heimavitjanir eftir fæðingu miða að því að veita foreldrum stuðning og fræðslu, á oft viðkvæmum tíma eftir fæðingu barns, í þeirra umhverfi. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf foreldra til heimavitjana á vegum ung- og smábarnaverndar heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og einnig að sjá hvort munur er á viðhorfum foreldra með fyrsta barn og þeirra sem áttu barn fyrir. Rannsókn sem þessi hefur ekki verið birt á Íslandi áður. \nAðferð: Rannsóknin er lýsandi þversniðsrannsókn. Úrtakið voru foreldrar sem komu með börn í sex og níu vikna skoðanir á heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 13. janúar til 7. febrúar 2020. Þeim var afhent samþykkisbréf, þar gáfu þeir samþykki og netfang og fengu þá sendan rafrænan spurningalista með 27 opnum og lokuðum spurningum. \nNiðurstöður: Þátttakendur í rannsókninni voru 136 (93% konur). Rétt tæpur helmingur var að eignast sitt fyrsta barn (49%). Flestir þátttakendur voru frekar eða mjög ánægðir með heimavitjanir frá ung- og smábarnavernd (92%). Flestum fannst heimavitjanirnar hæfilega margar (84%) og hæfilega langar (96%). Ekki var marktækur munur á milli viðhorfa foreldra með fyrsta barn og þeirra sem áttu barn fyrir varðandi tíðni eða lengd vitjana. Foreldrar lýstu ánægju með heimavitjanir, þeir kunnu að meta ráðgjöf, fræðslu, stuðning og hvatningu sem hjúkrunarfræðingar og veittu þeim. Foreldrar sem voru óánægðir með heimavitjanirnar (6%) óskuðu eftir aukinni og sértækari fræðslu varðandi þau vandamál sem upp komu. Óskað var eftir því að aðgengilegur væri listi um hvað væri farið yfir í hverri vitjun. \nÁlyktanir: Foreldrar nýbura eru ánægðir með skipulag á heimavitjunum hjá heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, Foreldrar kunnu að meta það að fá þennan stuðning í þeirra umhverfi en ástæða er að þróa heimavitjanir áfram. Standa verður vörð um þjónustu við fjölskyldur á þessum viðkvæmu tímum en heimavitjunum hefur fækkað síðastliðin ár. \nLykilorð: heimavitjun, ung- og smábarnavernd, viðhorf foreldra, heilsugæsla, hjúkrunarfræðingar, þversniðs rannsókn, lýsandi tölfræði.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998853203
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10