Að breyta lífsstíl með áhugahvetjandi samtölum : hafa áhugahvetjandi samtöl heilsueflandi áhrif á einstaklinga sem eru í áhættu að þróa með sér sykursýki II?
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Sykursýki II og offita hefur aukist hér á landi og afleiðingar þessara sjúkdóma geta orðið mikil byrgði fyrir samfélagið. Með auknu forvarnarstarfi í formi fræðslu og stuðnings geta hjúkrunarfræðingar komið í veg fyrir og/eða minnkað áhættuna á sykursýki II. \nRannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. gráðu í hjúkrunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri. Í framskyggðri, slembaðri íhlutunarrannsókn verður kannað hvort inngrip hjúkrunarfræðinga í formi áhugahvetjandi samtala hafi heilsueflandi áhrif á einstaklinga sem eru í áhættu á að fá sykursýki II á næstu 10 árum samkvæmt „The Finnish Type 2 Diabetes Risk Assesment Form“ (FINDRISK) matstækinu. \nÞátttakendur í rannsókninni verða á aldrinum 18-70 ára, starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem skora > 9 á FINDRISK matstækinu. Samanburðarhópurinn fær mælingu og fræðslu um hreyfingu og matarræði í upphafi rannsóknar. Í lok rannsóknar verða báðir hóparnir svo mældir á sama hátt og gert var í upphafi rannsóknar. \nHöfundar álykta að með markvissri skimun fyrir áhættuþáttum sykursýki II og aukinni notkun áhugahvetjandi samtala væri hægt að minnka og koma í veg fyrir fylgikvilla. Með því væri hægt að sporna gegn þessari gífurlegu aukningu á tilfellum sykursýki II. \n \nLykilhugtök: Áhugahvetjandi samtöl, lífsstíll, sykursýki II, heilsuefling, valdefling og lífsstílsbreyting.
Source: Skemman
Authors: Áslaug Björnsdóttir 1974, Dagbjört Helga Guðmundsdóttir 1974, Halla Arnfríður Grétarsdóttir 1969, Svanbjörg Andrea Halldórsdóttir 1973
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Endocrinology, Diabetes and Metabolism
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998855864
