Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Með breyttu loftslagi vegna hlýnunar jarðar eru sífellt fleiri börn sem verða fyrir áhrifum náttúruhamfara og þörf fyrir þekkingu á þessu málefni hefur því aldrei verið meiri. Á hverju ári eru um 175 milljónir barna sem verða fyrir áhrifum hamfara. Börn eru sérstaklega viðkvæm og bregðast öðruvísi við heldur en fullorðnir. Börn sækjast eftir stöðugleika og er það oft það sem hverfur ef náttúruhamfarir geisa yfir í nánasta umhverfi barns. Engin tvö börn upplifa áföll eins og þau geta fundið fyrir flóknum tilfinningum. Reiði, depurð, kvíði og sektarkennd eru allt eðlilegar tilfinningar í kjölfar náttúruhamfara. Börn skilja og upplifa hamfarir gjarnan á annan hátt en fullorðið fólk og þvi er mikilvægt að huga sérstaklega að stöðu barna á tímum hamfara. Í þessari ritgerð er lagt mat á stöðu barna á tímum náttúruhamfara og að mikilvægi þess að huga sérstaklega að velferð þeirra í þeim aðstæðum. Jafnframt er skoðað hlutverk viðbragðaðila á tímum áfalla með sérstakri áherslu á aðkomu félagsráðgjafa. \nLeitast er eftir að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hver eru áhrif náttúruhamfara á börn? Hvernig er fræðslu og undirbúningi vegna náttúruhamfara háttað hér á landi þegar börn eiga í hlut? Hver getur aðkoma félagsráðgjafa verið í vinnu með börnum á tímum hamfara? \nNiðurstöður leiddu í ljós að fræðsla sé besta leiðin til þess að undirbúa og aðstoða börn, bæði sem forvörn og við úrvinnslu eftir áföllin. Þrátt fyrir það þá virðist fræðslu fyrir börn á tímum áfalla vera ábótavant og lítið er til af efni fyrir börn á íslensku. Þegar skoðaðar voru niðurstöður erlendra og íslenskra rannsókna var samhljómur um að náttúruhamfarir gætu haft mjög slæm áhrif á börn og geta áföllin fylgt einstaklingum til lengri tíma. Félagsráðgjafar vinna á fjölbreyttum starfsvettvangi og búa yfir þekkingu og hæfni sem kemur sér vel á tímum samfélagsáfalla. Meðal styrkleika sem félagsráðgjafar hafa á þessu sviði er að þeir eru þjálfaðir í að setja sig í spor annarra, þekkja einkenni og leiðir til að vinna úr áföllum og þekkja þau úrræði sem er í boði eru í samfélaginu fyrir þolendur samfélagsáfalla og náttúruhamfara.
Source: Skemman
Author: Guðrún Embla Eiríksdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998885040
