Work

Að tala íslensku sem útlendingur: Mál frönskumælandi málhafar og erfiðleikar þeirra við framburð

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Að tala íslensku á Íslandi er færni sem getur haft jákvæð áhrif á hegðun í samfélaginu, sérstaklega fyrir útlendinga. Þó tala flestir Íslendingar reiprennandi ensku og geta tjáð sig á öðrum tungumálum en móðurmálinu, en að læra tungumálið er auðveldari leið til að tryggja tengsl, samband og aðstoð frá samfélaginu. \nMikilvægur þáttur til að bæta framburð sinn er að æfa daglega, og ef mögulegt með málhafa málsins. Reyndar geta þeir gefið endurgjöf um framburðinn sem og hvatt erlenda ræðumenn til að bæta tungumálakunnáttu sína. Það tekur tíma að læra nýtt tungumál, sérstaklega fyrir fullorðna sem eru að vinna og læra á kvöldin. Það tekur mörg ár að skilja málfræðireglur, læra orðaforða og fullkomna hljóðfræði erlends tungumáls. Af þessum sökum byggist þessi rannsókn á frönskumælandi málhöfum sem hafa búið á Íslandi í mislangan tíma til að koma auga á hvaða hljóðfræði leiðréttist með tímanum. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hver eru erfiðustu framburðareinkenni íslenskrar tungu fyrir frönskumælandi málhafa og hvort og hvenær þeim tekst að ná tökum á þessum framburðaratriðum.
Source: Skemman
Author: Héloïse Wary
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998895781
Cites: 14
Cited by:
Related to: 10