Work

Birtingarmynd kvenna í auglýsingum í tímaritinu Vikunni 1973-2012

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Auglýsingar hafa í gegnum tíðina verið gagnrýndar fyrir að stuðla að misrétti á milli kynjanna með því að byggja á skaðlegum staðalímyndum. Konur hafa oft verið sýndar aðgerðalausar í auglýsingum á meðan karlmenn eru sýndir í leiðandi hlutverkum. Viðfangsefni rannsóknarinnar er að kanna birtingarmyndir kvenna í auglýsingum í tímaritinu Vikunni frá árinu 1973 til 2012. Markmiðið er að komast að því hvort breytingar hafi orðið á birtingarmynd kvenna á þessum árum og ef svo var á hvaða hátt. Notast er við megindlega rannsóknaraðferð og greiningarlíkan Erving Goffman til að greina hversu mikla karlmennskuhegðun er að finna í auglýsingunum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að birtingarmynd kvenna í auglýsingum í Vikunni hefur breyst síðastliðin 40 ár. Konur hafa öðlast meiri gerendahæfni með árunum og eru í auknum mæli sýndar utan veggja heimilisins. Þær hafa einnig öðlast meiri völd og karlmenn eru ekki eins oft sýndir í leiðandi hlutverki. Nekt og hlutgerving kvenlíkamans hefur aukist og kynferðislegur undirtónn er meira áberandi í auglýsingum í dag en áður fyrr.
Source: Skemman
Author: Anna Heba Hreiðarsdóttir 1985
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998905899
Cites: 13
Cited by:
Related to: 10