Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknin fjallar um reynslu einhverfra barna á aldrinum 12-17 ára af þátttöku sinni heima við, í skólaumhverfi og frítíma. Rannsóknin er eigindleg og gagna var aflað með opnum viðtölum við 10 börn á höfuðborgarsvæðinu og gögn voru greind samkvæmt vinnulagi grundaðrar kenningar. Rannsóknin er hluti af rannsóknarverkefninu Lífsgæði, þátttaka og umhverfi barna sem búsett eru á Íslandi sem unnin er í samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Niðurstöður sýndu að fjölskyldan og heimilið skipta einhverf börn miklu. Þau líta á heimilið sem sinn griðarstað, hafa þörf fyrir næði og hvíld heima við og sögðust jafnframt taka virkan þátt í athöfnum sem sneru að heimilishaldi. Reynsla barnanna af námslegri aðstoð í skóla var góð. Skólaumhverfið studdi hins vegar ekki vel við félagslega þátttöku þeirra og samskipti við skólafélaga. Öll börnin tóku virkan þátt í tómstundaiðju utan skóla og reynsla þeirra var yfirleitt ánægjuleg. Annar frítími var notaður til samveru með fjölskyldunni. Rannsóknin varpar ljósi á reynslu barnanna og endurspeglar mikilvægi þess að leita eftir sjónarhorni fatlaðra barna í rannsóknum.
Source: Skemman
Author: Helga Þorleifsdóttir 1963
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998976709
