Bráðgerir nemendur : mat á þróunarverkefni við Njarðvíkurskóla
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Markmiðið með þessu verkefni var að rannsaka námsskipulag í íslensku fyrir lítinn hóp bráðgerra nemenda í 3. bekk Njarðvíkurskóla og viðhorf og reynslu þeirra sem komu að verkefninu. Í febrúar 2013 vaknaði sú hugmynd að fara af stað með þróunarverkefni fyrir bráðgera nemendur í 3. bekk í Njarðvíkurskóla. Verkefnið hófst í september 2013 og hafði þann tilgang að koma enn betur til móts við þarfir bráðgerra nemenda og leita leiða til að skapa þeim námsaðstæður við hæfi, bæði hvað varðaði innihald og kennsluhætti. \nÞátttakendur í rannsókninni skiptust í fjóra hópa. Í fyrsta lagi voru það fimm nemendur sem áttu hlut að máli, allt stúlkur í 3. bekk. Í öðru lagi voru það foreldrar eða forráðamenn stúlknanna, samtals tíu. Í þriðja lagi kennarinn sem kenndi og skipulagði þróunarverkefnið og loks í fjórða lagi skólastjórnendur. Leitast var við að svara spurningum um nám og kennslu hinna bráðgeru nemenda, árangur og ávinning af námsskipulaginu, upplifun allra sem áttu hlut að máli, áhrif á líðan og viðhorf nemendanna sjálfra og hvað í íslenskukennslunni gagnaðist. Einnig var leitað svara við spurningum um hugsanlegar hindranir og vandamál og hvernig mætti leysa þau. \nTil þess að fá sem besta innsýn í þróunarverkefnið var blönduðum aðferðum beitt við gagnaöflun. Niðurstöður vettvangsathugana voru skráðar í dagbók, tekin voru hálfopin viðtöl og rýnihópaviðtöl, spurningalistar lagðir fyrir nemendur og skoðaðar niðurstöður kannana, skimana og prófa ásamt öðrum gögnum. \nNiðurstöður gefa til kynna að viðhorf þeirra sem áttu hlut að máli hafi verið jákvætt. Nemendur reyndust ánægðir og úrræðin virtust hafa jákvæð áhrif á líðan þeirra. Foreldrar töldu börnin sín fá nám við hæfi með krefjandi og fjölbreyttum verkefnum. Þeim þótti einnig að áhuginn hefði aukist og töldu allir foreldrar sig sjá framfarir hjá börnum sínum og því var kennari hópsins sammála. Námslega hafa nemendur bætt sig mikið og sýnt talsverðar framfarir.
Source: Skemman
Author: Ebba Lára Júlíusdóttir 1987
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998977312
