Work

Borðað með góðri samvisku: Tengsl sjálfbærrar matarneyslu og persónuleikaþátta

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Lykilatriðið til þess að ná árangri í markaðsstarfi er að skilja hvað mótar hugsunir, langanir og hegðun markhópsins. Persónuleikaþættir eru taldnir haldast stöðugir til langs tíma og haha þeir áhrif á tilfinningar, viðbrögð og hegðun fólks. Þeir er því oft nýttir til að skilgreina mismunandi markhópa. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hver tengsl væru á milli persónuleikaþátta og sjálfbærrar matarneyslu. Notast var við HEXACO persónuleikaprófið sem samanstendur af sex persónuleikaþáttum: heiðarleika-auðmýkt, tilfinningasemi, úthverfu, samvinnuþýði, samviskusemi og víðsýni. Ásamt því voru settir fram fjórir mismunandi þættir sjálfbærrar matarneyslu; velferð dýra, siðferðisleg áhyggjuefni, umhverfisvelferð auk árstíða- og staðbundinnar framleiðslu. Spurningalistanum var dreift á samfélagsmiðlum og þar sem bárust 408 svör. Kynjahlutfallið var heldur ójafnt þar sem 81,6% þátttakenda skilgreina sig sem konur. Dreifing aldurs, tekna og menntunarstigs var þó töluvert jafnari. Niðurstöðurnar bentu til þess að persónuleikaþættir hefðu meiri áhrif á sjálfbæra matarneyslu neytenda heldur en lýðfræðilegir þættir. Niðurstöðurnar benda til þess að tengsl séu á milli þess að mælast hátt í víðsýni og að neyta frekar matvæla sem taka tillit til dýra- og umhverfisvelferðar. Einnig benda þær til þess að tengsl séu milli þess að mælast hátt í heiðarleika – auðmýkt og að neyta heldur árstíða- og staðbundinnar framleiðslu. Þeir sem mælast hátt í úthverfu voru samkvæmt rannsókninni líklegir til að neyta matvæla sem huga að umhverfisvelferð sem og árstíða- og staðbundinnar framleiðslu. \nRannsóknin er framlag til fræðanna um sjálfbæra matarneyslu og getur því gagnast markaðsfólki á því sviði. Niðurstöðurnar gefa skýrari mynd af því hvernig hægt sé að nálgast markhóp sjálfbærra matvæla út frá persónuleikaþáttum. Persónuleikaþættir virðast hafa meiri skýringarmátt heldur en bakgrunnsþættir þegar kemur að sjálfbærri matarneyslu og er því gott að taka þá til greina við greiningu og val markhópa.
Source: Skemman
Author: Hildur Lilja Valsdóttir Hjarðar
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6998996952
Cites: 80
Cited by:
Related to: 10