Work

Breytingar á hafi og vistkerfum þess við strendur Íslands

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Í fyrsta hluta ritgerðarinnar fjalla ég um helstu breytingar sem hafa átt sér stað í vistkerfi hafsins á landgrunni Íslands og víðar í Norður-Atlantshafi í kjölfar loftslagsbreytinga sem hafa átt sér stað frá iðnbyltingu. Þessi hluti er hugsaður sem aðgengilegt ítarefni fyrir kennara sem fjalla um lífríki sjávar á unglingastigi. \nLoftslagsbreytingar hafa áhrif á vistkerfi sjávar allsstaðar í heiminum en ein af alvarlegum afleiðingum þeirra, súrnun sjávar, hefur sérstaklega mikil áhrif á pólsvæðunum. Súrnun sjávar getur meðal annars leitt til hruns margra mismunandi dýrategunda. Vistkerfin við strendur Íslands standa nú frammi fyrir mikilli hættu sem erfitt er að koma í veg fyrir nema með stórtækum aðgerðum. Önnur líkleg afleiðing loftslagsbreytinga er breyting á dreifingu hafstraumakerfa heimsins. Hafstraumar hafa mikil áhrif á lífsskilyrði með áhrifum á hita og seltustig sjávar og eru mikilvægir við dreifingu fæðu og ákvörðun vaxtarskilyrða og útbreiðslu lífvera. \nFiskitegundir sem eru algengastar hér við land eru líklegar til að bregðast við hlýnun sjávar með breyttri útbreiðslu, ýmist hörfa undan eða fylgja hlýjum sjó norður á bóg en einnig með stofnstærðarbreytingum. Vegna aukningar á hlýsjó við landið munu ákveðnar tegundir jafnvel hörfa úr lögsögunni, og nýjar tegundir koma inn. Loðna hefur t.d. í miklum mæli fært sig úr lögsögunni til norðvesturs, meðan makríll hefur orðið mjög algengur. \nSeinni hluti ritgerðarinnar er kennslufræðilegur. Þar fjalla ég meðal annars um náttúrugreinakennslu í grunnskólum sem og mikilvægi þess að þekking kennara og annarra sem koma að menntun barna og unglinga á efninu sé góð. Þekking er grundvöllur þess að kenna nemendum um efnið á árangursríkan hátt. Einnig eru þar að finna kennsluverkefni sem henta fyrir nemendur í náttúrugreinum á unglingastigi sem tilvalið er að nota þegar umfjöllun um áhrif loftslagsbreytinga hefur farið fram. Gerð er grein fyrir kennsluaðferðum sem henta og tengingum við námskrá. Markmið með þessum verkefnum er annars vegar að ýta undir skilning nemenda og gera þeim grein fyrir alvarleika loftslagsbreytinga og áhrifum þeirra og hins vegar að gera nemendur meðvitaða um mikilvægi þess að leggja sitt að mörkum í baráttunni að sjálfbærari heimi.
Source: Skemman
Author: Heiðrún Hafsteinsdóttir 1988
Language: Icelandic
Subfield: Oceanography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6999161499
Cites: 60
Cited by:
Related to: 10