Work

Drómasýki : áhrif á líðan og daglegt líf

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Drómasýki er sjaldgæfur taugasjúkdómur sem var ekki áberandi í umræðunni á Íslandi fyrr en í kjölfar bólusetningar við svínaflensu (N1H1) veturinn 2009 til 2010. Sú umfjöllun sneri frekar að tengslum þeirrar bólusetningar við þróun drómasýki fremur en um sjúkdóminn sjálfan og áhrif hans á líf fólks. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvaða áhrif drómasýki hefur á daglegt líf einstaklinga sem af sjúkdómnum þjást. Upplýsinga var aflað í formi eigindlegra viðtala við fimm Íslendinga sem greindir eru með drómasýki. Rætt var um upplifun þeirra á sjúkdómnum, þar með talin einkenni, greiningarferli, meðferð og möguleikann á bættri þjónustu við sjúklinga og/eða aðstandendur þeirra. Helstu niðurstöður sýna að mikill skortur er á upplýsingaflæði heilbrigðisstarfsfólks til sjúklinga og einnig er þekking almennings lítil þegar kemur að drómasýki. Jafnframt kemur fram að drómasýki getur haft margvíslegar og mismunandi birtingarmyndir þegar að einkennum kemur. Þess vegna getur reynst afar erfitt fyrir sjúklinga að átta sig á að einkenni tengist drómasýki áður en greining er að fullu staðfest. Viðmælendur okkar upplifðu ekki langt greiningarferli samanborið við önnur lönd, þó beið einn viðmælandi í sex ár eftir réttri greiningu. Þá getur verið áskorun fyrir fólk að lifa með drómasýki þar sem það krefst mikils skipulags. Umburðarlyndi frá aðstandendum og samferðafólki er einnig gífurlega mikilvægt svo að viðkomandi upplifi sig ekki óhæfan til að takast á við athafnir daglegs lífs. \nLykilhugtök: Drómasýki, kataplexía, svefnköst, svefnlömun, ofskynjanir, órexín, HLA-DQB1*0602
Source: Skemman
Authors: Sandra Borg Bjarnadóttir, Harpa Svava Einarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6999882497
Cites: 75
Cited by:
Related to: 10