Effect of the Buteyko Method on Resting Ventilation and Asthma Control in Asthma Patients
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Bakgrunnur. Buteyko meðferðin (BM) virðist breyta öndun, bæta lífsgæði og astma stjórnun hjá astma sjúklingum. Rannsóknir hafa fram að þessu ekki skilgreint nægilega vel lífeðlisfræðileg áhrif meðferðarinnar. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að skoða lífeðlisfræðileg áhrif BM á hvíldaröndun og stjórnun astma í hóp astmasjúklinga. \nAðferð. Í þessari framskyggnu, íhlutandi rannsókn með samanburðarhópi voru astmasjúklingar mældir þrisvar sinnum í algjörri hvíld, með 6 mánaða millibili. Þeir voru paraðir miðað við aldur, kyn og líkamsþyngdarstuðul (BMI) við heilbrigðan samanburðahóp. BM var kennd eftir fyrstu 6 mánuðina. Síðan var hópnum fylgt eftir og mældur að nýju 6 mánuðum síðar. Hvíldaröndun (öndunartíðni og andrýmd (VT)), næmni öndunarstöðva metin út frá viljastýrðu öndunarstoppi, efnaskipti, og astma control spurningalisti (ACT) voru skoðuð. Hlutfall milli heildaröndunar (V´E) og koltvísýringsútskilnaðar (V´E/V´CO2) var reiknað út. Fráblástursgeta á einni sekúndu (FEV1) var mæld og reiknuð sem hlutfall af hámarksandrýmd (FEV1/FVC). \nNiðurstöður: 22 (61%) af þeim 36 astmasjúklingum sem hófu rannsóknina og 20 þátttakendur í samanburðarhópi luku þátttöku. Í byrjum rannsóknarinnar voru hóparnir eins varðandi aldur, kyn og BMI, en FEV1/FVC hlutfallið var lægra og viljastýrða öndunarstoppið styttra hjá astmahópnum (p<0.05). Eftir BM hjá astmahópnum hafði hlutþrýstingur koltvísýrings við lok útöndunar (PETCO2), V´E/V´CO2, og stig fyrir ACT aukist (p<0.05) og viljastýrða öndunarstoppið hafði lengst (p<0.001). Eins hafði hlutþrýstingur súrefnis við lok útöndunar (PETO2), V´E, VT og efnaskipti minnkað en BMI hafði hækkað (p<0.05). FEV1/FVC var óbreytt. \nUmræða: Í upphafi var hvíldaröndun svipuð hjá hópunum en næmni öndunarstöðva var meiri hjá astmahópnum. BM virðist minnka næmni öndunarstöðva þar sem viljastýrða öndunarstoppið verður lengra. Hærra PETCO2 og lægra PETO2 bendir til að hlutfall milli alveolar öndunar (V´A) og V´CO2 (V´A/ V´CO2) hafi minnkað, þrátt fyrir hærra V´E/V´CO2. Því má álykta að lægra VT hafi aukið öndun í dauðarýminu. BM bætir stjórnun á astma án þess að hafa breytt FEV1/FVC.
Source: Skemman
Author: Monique van Oosten 1959
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Pulmonary and Respiratory Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000059065
