Work

„Ég þurfti að þroskast miklu fyrr í rauninni“: Upplifun og reynsla systkina barna með fjölþættan vanda

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að fanga sjónarhorn systkina barna með fjölþættan vanda og hvernig það er að alast upp á sama heimili, auk þess að varpa ljósi á þau víðtæku áhrif sem þessu getur fylgt, allt frá líkamlegum, andlegum og tilfinningalegum áhrifum. Í rannsókninni verður leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hver er upplifun og reynsla systkina barna með fjölþættan vanda af því að alast upp á sama heimili? Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð við framkvæmd rannsóknarinnar þar sem tekin voru eigindleg viðtöl við sex viðmælendur á aldrinum 18–25 ára, fimm konur og einn karlmann, sem ólust upp á sama heimili og systkini með fjölþættan vanda. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að upplifun og reynsla systkina barna með fjölþættan vanda var margþætt og hafði áhrif á viðmælendur út frá ýmsum sjónarhornum. Helstu niðurstöður sýna að fjölþættur vandi hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif sem og bein áhrif á systkinin en einnig út frá fjölskyldutengdum og samfélagslegum þáttum. Neikvæðu áhrifin sem viðmælendur urðu fyrir vegna fjölþætts vanda systkinis voru til að mynda hræðsla, streita og álag. Jákvæðu áhrifin voru aukin þolinmæði, bætt viðhorf til fjölþætts vanda og minnihlutahópa og þakklæti fyrir getu og forgangsröðun í lífinu. Mikilvægt er fyrir félagsráðgjafa að hafa þekkingu og vera meðvitaðir um þarfir systkina barna og einstaklinga með fjölþættan vanda þar sem niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að því fylgja töluverð áhrif á líf einstaklinga. \n \nLykilorð: fjölþættur vandi, fjölskyldur, systkini, fjölskyldutengsl
Source: Skemman
Author: Anna María Skaftadóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7000130628
Cites: 55
Cited by:
Related to: 10